Vöffin þrjú: Hvað er verðbólga?

„Eins og þú veist þá eru peningar ekki fastur mæli­kvarði heldur breyti­legur,“ sagði Breki Karlsson við Helga Seljan í upphafi sjötta þáttar af Ferð til fjár, sem jafnframt var sá síðasti í seríunni. Þættirnir voru á dagskrá RÚV og eru nú aðgengi­legir hér. Helgi vildi vita hvers vegna hann borgaði sífellt af lánum sem aldrei virtust lækka. „Ég held við þurfum að ræða aðeins um vöffin þrjú, vexti, verð­tryggingu og verðbólgu,“ sagði Breki.

Í þættinum fengu nokkrur háskóla­nemar að spreyta sig á að svara spurningunni: „Hvað er verðbólga“. Árangurinn var misjafn. En hvað er verðbólga?


Verðbólga er hækkun almenns verðlags yfir tíma. Þegar talað er um að verðbólga sé fimm prósent þá þýðir það yfirleitt að verð á allri vöru og þjónustu hafi að meðaltali hækkað um fimm prósent á síðastliðnum tólf mánuðum.


Það er Hagstofa Íslands sem mælir mánaðar­lega hver verð­bólgan er í landinu. Verðbólga á Íslandi hefur sögulega verið afar há í saman­burði við önnur vestur­lönd. Mikil hækkun verðlags hefur í för með sér að sífellt minna fæst fyrir hverja krónu, eins og kom fram þegar þeir Breki og Helgi fjölluðu um það hvernig verð­bólgan hefur étið sælgætis­pokann.


Tengt efni:


Bogi útskýrir vísitölu neyslu­verðs.


Lága verð­bólgan á Íslandi ein sú hæsta í Evrópu.


Sykur og sérfræðingar hafa hækkað mest.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár