Verðbólgan hefur étið sælgætispokann

Þeir Breki Karlsson og Helgi Seljan, umsjónar­menn Ferðar til fjár á RÚV, ræddu í síðasta þætti hvernig virði peninga rýrnar. Helgi rifjaði það upp hvernig hann gat einu sinni keypt stóran poka af sælgæti fyrir hundrað kall. Í dag, einhverjum tuttugu árum síðar, fær hann varla svo mikið sem karamellu fyrir sama pening. „Hvernig stendur á því að ég fæ eina karamellu núna en áður gekk ég út með brjósklos undan farginu,“ spurði hann Breka.

Sökudólgurinn er auðvitað verð­bólgan. Það sem fæst fyrir sömu fjárhæð minnkar og minnkar með árunum. Með öðrum orðum þá rýrnar verðgildi peningsins – minna fæst fyrir hann en áður. Eins og Breki benti á, þá verður þó að hafa í huga að áður tók það mun lengri tíma að vinna sér inn fyrir samskonar stærð af sælgætis­poka og í gamla daga. Fleiri hundrað kallar fást fyrir vinnu en þá.


„Laun hafa að meðaltali hækkað um 23 prósent umfram verðbólgu undan­farin 25 ár,“ sagði Breki. Kaup­máttur launa, það er það magn af vörum eða þjónustu sem við fáum fyrir kaupið okkar, hefur þannig aukist á þessum tíma, þótt stór poki af sælgæti kosti í dag miklu meira en hundrað krónur.


Breyting á vísitölu neyslu­verðs yfir tólf mánaða tímabil er jafnan kölluð verðbólga, eða verð­hjöðnun ef verðlag lækkar á tíma­bilinu. Hagstofan mælir hundruð vara og þjónustu­liða í hverjum mánuði til þess að fylgjast með verðlags­breytingum. Þessar vörur og þjónusta vigta misþungt í vísi­tölunni. Eins og fram kom í síðasta þætti af Ferð til fjár þá er afar misjafnt hvernig verð hefur breyst á einstökum liðum. Þannig hefur rjóma­súkkulaði hækkað um tæplega helming á síðastliðnum 15 árum á sama tíma og verð á galla­buxum hefur nærri tvöfaldast. Á þessu tímabili hækkaði verðlag í landinu um 116 prósent, samkvæmt vísitölu neyslu­verðs.

Verð­breyting á rjóma­súkkulaði og galla­buxum frá 1999 til 2014.

Kjarninn og Stofnun um fjármála­læsi hafa tekið höndum saman og munu fjalla ítarlega um heimilis­fjármál samhliða þáttunum Ferð til fjár, sem sýndir verða á RÚV næstu vikur. Markmiðið: Að stuðla að betra fjármála­læsi hjá lands­mönnum! Næsti þáttur er á dagskrá fimmtudaginn 5. febrúar. Fylgstu með á Facebook-síðu Ferðar til fjár.


Verðbreyting á rjómasúkkulaði og gallabuxum frá 1999 til 2014.
Verð­breyt­ing á rjómasúkkulaði og galla­buxum frá 1999 til 2014.
ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár