Vöffin þrjú: Hvað er verðtrygging?

Eitt vita þeir sem skulda verð­tryggt húsnæðislán: Á tímabilum hefur lánið hækkað, þrátt fyrir að skilmerki­lega hafi verið greitt af því afborganir og vexti. En hvað nákvæmlega er verð­tryggingin?

Hún var til umfjöllunar í sjötta og síðasta þætti Ferðar til fjár sem sýndir voru á RÚV og eru nú aðgengi­legir hér. Þeir Breki Karlsson og Helgi Seljan fjölluðu þá um vöffin þrjú, það eru verðbólga, verð­trygging og vextir.


Verð­trygging þýðir að fjárhagslegar skuld­bindingar, bæði sparifé og lánsfé, halda verðgildi sínu þrátt fyrir breytingar á verðlagi. Með öðrum orðum er sá sem leggur inn eða lánar peninga að tryggja það að hann fái jafngildi fjársins til baka.


Hvers vegna vilja lánveitendur þá verð­tryggja lánin? Það er vegna þess að króna í dag er ekki endilega jafngild krónu á morgun, hvað þá krónu eftir 25 ár. Verð­bólgan rýrir verðgildi krónunnar, minna fæst fyrir hverja krónu en áður, en með því að verð­tryggja lán eða innstæðu er það tryggt að upphæðin haldi verðgildi sínu.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár