Ágreiningur innan ESB um refsiaðgerðir gegn rússneskum auðmönnum

ESB-ríkin reyna að ná samkomu­lagi um fram­lengingu refsiaðgerða gegn Rússlandi áður en þær renna út í kvöld. Lettland leggst gegn því að tveir rússneskir auðmenn verði teknir af refsiaðgerða­listanum.

Á listanum
Á list­anum Alisher Usmanov er rúss­nesk-úsbekskur millj­arða­mær­ingur sem hefur verið á refsi­að­gerða­lista ESB frá því skömmu eftir inn­rás Rúss­lands í Úkraínu árið 2022. Frakk­land og Slóvakía hafa kraf­ist þess að hann verði tek­inn af list­anum. Mynd: IGOR IVANKO / AFP

Ríki Evrópu­sambandsins hófu í morgun að nýju viðræður í kapp­hlaupi við tímann um fram­lengingu refsiaðgerða gegn Rússlandi, eftir að fulltrúar Lettlands komu í veg fyrir samkomulag um að taka tvo rússneska auðmenn af refsiaðgerða­lista sambandsins.

Ríkin 27 virtust hafa náð samkomu­lagi um að aflétta frystingu eigna og ferða­banni á rússnesku kaup­sýslu­mennina Alisher Usmanov og Mikhail Fridman eftir kröfur Frakk­lands, Lúxemborgar og Slóvakíu.

Fyrir­huguð aflétting, sem stjórn­völd í Úkraínu hafa gagnrýnt harðlega, var hluti af mála­miðlun um að fram­lengja refsiaðgerðir gegn nærri 3.000 öðrum einstaklingum og lögaðilum vegna stríðsins í Úkraínu um þrjú ár. Frestur til að fram­lengja aðgerðirnar rennur út klukkan 22 að íslenskum tíma í kvöld og gætu þær annars fallið úr gildi.

Samkomu­lagið virtist vera í höfn en Lettar settu sig óvænt upp á móti því seint í gærkvöldi.

„Afstaða lettnesku ríkis­stjórnarinnar hefur verið óbreytt. Refsiaðgerðir ESB gegn Rússlandi verður að herða, ekki …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár