Lánið þitt: Munurinn á verðtryggðum og óverðtryggðum lánum

Það eru fá umræðu­efni á Íslandi eldfimari en verð­tryggingin. Stjórn­málaflokkar hafa haft það að stefnu sinni að afnema hana, með misheppnuðum árangri til þessa, og það er mat margra að verð­trygging sé ein helsta rót efnahags­vanda þjóðarinnar. Hér verður ekki tekin afstaða til þessara deilumála, heldur spurt hvaða lánaform hentar lántakendum við íbúðakaup – Eitt form hentar ekki öllum. Verð­tryggt eða óverðtryggt, það er spurningin.

Þessi grein er hluti af greinar­flokki um þau atriði sem varða húsnæðis­lána­töku og önnur lán á Íslandi. Áður hefur verið fjallað um vaxtakjör lánanna og mismun­andi lánaform.

Óverðtryggð lán

Hægt er að velja um tvenns konar lánaform, hvort sem valið er að taka verð­tryggt lán eða óverðtryggt. Lán eru greidd ýmist með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum.


Með jöfnum afborgunum á óverðtryggðu láni er sama upphæð greidd af höfuðstól lánsins í hverjum mánuði. Vextir eru greiddir af eftir­stöðvum. Vaxta­greiðslur eru því háar í upphafi þegar höfuð­stóll er hár, og þar með er heildar­greiðsla á mánuði há, en lækkar ört eftir því sem höfuð­stóllinn lækkar.


Með jafn­greiðslum af óverðtryggðu láni er heildar­greiðslan á mánuði alltaf sú sama. Í upphafi fer stærstur hluti upphæðarinnar í að greiða vexti en það snýst við þegar líður á láns­tímann, og meira er greitt af höfuð­stólnum.

Verðtryggð lán

Íbúðalán íslenskra heimila eru í miklum meirihluta verð­tryggð. Það þýðir að lánin hækka ef verð­bólgan hækkar. Þetta vita Íslendingar ágætlega.


Ef verð­tryggða lánið er með jöfnum afborgunum þá eru greiddir raun­vextir og afborganir af höfuðstól. Munurinn á verð­tryggðu og óverðtryggðu láni með jöfnum afborgunum er sá að höfuð­stóll verð­tryggða lánsins hækkar í takt við verð­bólguna. Afborgunin er því ekki alltaf sú sama, hún fer hækkandi með verð­bólgunni. Þetta leiðir til þess að greiðslu­byrðin er lág í upphafi.


Flest húsnæðislán íslenskra heimila eru verð­tryggð jafngreiðslulán. Ef verð­bólgan væri engin þá væri sama heildar­upphæð greidd á mánuði. En árlega er höfuð­stóll lánsins endur­reiknaður með tilliti til verð­bólgunnar – og upphæð sem nemur verðbólgu bætt við lánið.

Hverju munar þá?

Lántaki óverðtryggðs láns veit hvað hann borgar af láninu. Lántaki verð­tryggðs láns veit það hins vegar ekki, því hann veit ekki nákvæmlega hvernig verð­bólgan mun hafa áhrif á lán hans til hækkunar – og þar með til hækkunar á afborgun og heildar­greiðslu.


Sé fólk í stakk búið til að borga háar greiðslur af láninu í upphafi, þá getur lán með jöfnum afborgunum verið hentugri kostur. Þannig er höfuð­stóllinn greiddur hraðar niður, greiðslu­byrði er mikil fyrst en fer lækkandi. Sé lánið óverðtryggt þá borgast höfuð­stóll lánsins hratt niður, og eigna­myndunin er því hröð.


Sögulega þá hafa raun­vaxtakjör á verð­tryggðum lánum verið hagstæðari en á óverð­tyggðum lánum. Eigna­myndun í húsnæði hefur aftur á móti verið hægari með verð­tryggðum jafn­greiðslu­lánum, þar sem svo hátt hlutfall greiðslunnar fer í vexti í upphafi og verð­tryggingin bætist við lánið umfram greiðslur í fyrstu. Verð­tryggt jafngreiðslulán getur hentað þeim sem ekki ráða við eins háar endur­greiðslur í upphafi og í tilfelli óverðtryggðra lána með jöfnum afborgunum. Þá getur það einnig verið hentað að taka verð­tryggt jafngreiðslulán, t.d. af þeirri ástæðu að vaxtakjör eru hagstæðari, en greiða inn á lánið eins og um óverðtryggt lán sé að ræða. Með því móti lækkar höfuð­stóllinn strax í upphafi, rétt eins ef um væri að ræða óverðtryggt lán með jöfnum afborgunum.


Umfjöllun Kjarnans og Stofnunar um fjármála­læsi byggir helst á skýrslu frá 2010 um verð­tryggingu skuld­bindinga, unnin af Má Wolfgang Mixa að beiðni VR, fyrir milli­göngu Stofnunar um fjármála­læsi. Skýrsluna má lesa hér.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár