Lánið þitt: Munurinn á nafn- og raunvöxtum

Kaup á fasteign er fyrir okkur flest einhver stærsta fjárhags­lega ákvörðun sem við tökum á lífs­leiðinni. Kaupunum fylgir lántaka upp á margar milljónir króna, sem við skuld­bindum okkur til að greiða til baka á næstu árum eða áratugum. Þegar svo háar fjárhæðir eru í spilunum er best að vita sem mest um hvað málið snýst. Lána­formin sem bjóðast eru mismun­andi og eitt lánaform hentar ekki öllum. Það sem hentar einum lántakanda getur verið ómögulegt fyrir annan.

Þessi grein er hluti af greinar­flokki um þau atriði sem varða húsnæðis­lána­töku og önnur lán á Íslandi.

Nafnvextir og raunvextir

Af þeirri ástæðu einni að lánveitandinn vill bera eitthvað úr bítum við að lána þér peninga, þá bera íbúðalán vexti. Vextir eru það gjald sem við borgum fyrir að fá peninga að láni.


Þegar við tökum lán eru okkur sýndir nafn­vextirnir sem lánið ber. Bankinn ákveður vextina og lítur til þess hvað hann telur ásættanlega ávöxtun umfram verðbólgu í landinu. Nafn­vextirnir innibera þannig væntingar bankans um verðbólgu­þróun auk þess sem bankinn tekur mið af þeim vaxta­kjörum sem hann fjár­magnar sig á. Hann vill að útláns­vextirnir, það eru vextir á útlánum bankans, séu hærri en innláns­vextirnir.


Ef vextirnir eru fastir, til dæmis til þriggja eða fimm ára, þá leggur bankinn einnig á sérstakt óvissu­álag.


Nafn­vextir = raun­vextir + verðbólga + óvissu­álag


Með raun­vöxtum er átt við vexti umfram verðbólgu. Raun­vextir eru því lægri en nafn­vextir, eða sem nemur verð­bólgunni.


Raun­vextir = Nafn­vextir - verðbólga




Vaxtakjör eru lægri á verð­tryggðum lánum en óverðtryggðum vegna þess að í vaxta­kjörum verð­tryggðra lána er ekki tekið tillit til verð­bólgunnar. Verð­tryggingin er í raun viðbótar­vextir, jafn háir og verð­bólgan, sem bætast aftan við höfuð­stólinn. Bankinn þarf ekki að reikna óvissu­álag, þar sem öll verðbólgu­áhætta liggur hjá lántakanum. Ef verð­bólgan í landinu er t.d 5 prósent þá er vaxtaálag lánsins 8,5 prósent.

Fastir eða breytilegir vextir?

Bankarnir bjóða upp á lán með föstum vöxtum til ýmist þriggja eða fimm ára. Það þýðir einfald­lega að vextirnir munu ekki breytast á láninu þínu á þeim tíma, jafnvel þótt verð­bólgan í landinu aukist eða minnki. Ef vextirnir eru breyti­legir þá áskilur bankinn sér rétt til þess að breyta vaxta­kjörunum milli mánaða.

Og hver er þá munurinn?

Hentar þér að borga breyti­lega eða fasta vexti í upphafi? Það fer til dæmis eftir því hvort þú teljir verð­bólguna aukast eða minnka á næstu misserum. Ef það er líklegt að verð­bólgan eykst, þá gæti verið sniðugt að festa vaxta­kjörin. Ef vextirnir eru breyti­legir þá munu vextirnir hækka samhliða aukinni verðbólgu.


Það er ekki auðveld að spá fyrir um verð­bólguna, meira að segja fyrir langlærða sérfræðinga. Þeir sem tóku húsnæðislán fyrir örfáum árum með föstum vöxtum hafa til dæmis greitt hærri vexti en ella, vegna þess að verð­bólgan hefur verið lág að undan­förnu. Með öðrum orðum eru breyti­legu vextirnir lægri en þegar vextirnir voru festir á láni sumra lántakenda.


Kostir við að festa nafnvexti er stöðugri greiðslu­byrði milli mánaða. Ókosturinn getur verið hærri vaxta­greiðslur að jafnaði, vegna áhættu­álagsins, auk þess sem vextirnir gætu verið of háir, lækki verð­bólgan.


Breyti­legir nafn­vextir þurfa ekki að bera áhættu­álag og ættu því að vera lægri að jafnaði. En breyti­legir vextir geta hækkað ört ef verð­bólgan hækkar og bankarnir ákveða að hækka vextina í takt við þróunina.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár