Lánið þitt: Munurinn á jafngreiðslum og jöfnum afborgunum

Kaup á fasteign er fyrir okkur flest einhver stærsta fjárhags­lega ákvörðun sem við tökum á lífs­leiðinni. Kaupunum fylgir lántaka upp á margar milljónir króna, sem við skuld­bindum okkur til að greiða til baka á næstu árum eða áratugum. Þegar svo háar fjárhæðir eru í spilunum er best að vita sem mest um hvað málið snýst. Lána­formin sem bjóðast eru mismun­andi og eitt lánaform hentar ekki öllum. Það sem hentar einum lántakanda getur verið ómögulegt fyrir annan.

Þessi grein er hluti af greinar­flokki um þau atriði sem varða húsnæðis­lána­töku og önnur lán á Íslandi. Áður hefur birst grein um vaxta­kjörin sem lesa má hér.

Jafngreiðslur eða jafnar afborganir

Húsnæðislán viðskipta­bankanna eru ýmist jafngreiðslulán eða lán með jöfnum afborgunum. Munurinn á lána­formunum er sá að af jafn­greiðslu­láni er greidd sama mánaðar­lega upphæð út láns­tímann en af láni með jöfnum afborgunum er greitt mest í upphafi en upphæðin fer lækkandi eftir því sem höfuð­stóll lánsins lækkar.


Þegar talað er um afborgun er átt við hvað greitt er af höfuðstól lánsins, en með greiðslu er átt við heildar­greiðslu af láninu, það eru bæði afborganir og vaxta­greiðslur.

Jafngreiðslulán (annuitet)

Lántakinn greiðir sömu upphæð mánaðar­lega út láns­tímann. Samsetning greiðslunnar á milli vaxta og afborgana er aftur á móti mismun­andi á láns­tímanum. Vaxta­greiðslur vega þungt í upphafi og afborganir af höfuðstól minna. Þetta snýst við þegar líður á láns­tímann.


Ef jafn­greiðslu­lánið er verð­tryggt hækkar greiðslan með verðbólgu.

Lán með jöfnum afborgunum

Mánaðarleg heildar­greiðsla af láni með jöfnum afborgunum er ekki sú sama út láns­tímann. Afborgun af höfuð­stólnum, það er láninu sjálfu, er alltaf sú sama frá einum mánuði til annars, en vextirnir eru hærri í upphafi og þess vegna eru heildar­greiðslur mestar í upphafi. Þær fara síðan lækkandi þegar líður á láns­tímann, vegna þess að höfuð­stóllinn fer lækkandi og þar með vaxta­gjöld lánsins.


Óverðtryggð húsnæðislán með jöfnum afborgunum hafa notið aukinna vinsælda síðastliðin ár. Viðskipta­bankarnir hafa boðið upp á föst vaxtakjör til allt að fimm ára. Það þýðir að vextirnir eru þeir sömu í fimm ár eftir að lánið er tekið, en að þeim tíma loknum verða vextirnir breyti­legir. Þá ákveður bankinn hverjir óverðtryggðir vextir eru. Það metur hann út frá verðbólgu, stýri­vöxtum Seðla­bankans auk álags sem kalla má óvissu­álag.


ferd-til-fjar_bordi
ferd-til-fjar_bordi
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár