Íslenskir fuglar og þjóðtrú fyrir rökkurstundir

Bókmennta­gagnrýnandi Kjarnans fjallar um bókina Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin eftir Sigurð Ægisson. Þetta er „bók sem kynslóðir geta skoðað saman – það getur tekið margar ljúfar rökkur­stundir að lesa bara um músarrind­ilinn“.

Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin
Íslensku fugl­arnir og þjóð­trúin Mynd: Aðsend mynd

Sigurður Ægisson: Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin

Bóka­útgáfan Hólar 2020

Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin er afrakstur aldar­fjórðungs heimilda­söfnunar. Höfundurinn, Sigurður Ægisson þjóð­fræðingur og guðfræðingur hefur ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur heldur tekið til skoðunar alla íslenska, reglu­bundna varpfugla og nokkra að auki, skoðað og greinir frá dreifingu þeirra með sérstöku útbreiðslu­korti fyrir hvern fugl auk þess sem hann hefur tekið saman öll þekkt heiti þeirra, gælunöfn og uppnefni – sem einu nafni má kalla alþýðu­heiti – og svo gerir hann grein fyrir því hvernig þeir birtast í íslenskri og erlendri þjóðtrú. Þá er því til viðbótar birt ýmislegt forvitnilegt efni og ljóð sem tengist hverjum fugli að ógleymdum fjölda mynda, en þær munu vera um þrjú hundruð talsins. Þessi vinna hefur tekið tuttugu og fimm ár og kom upphaf­lega til af því að Sigurður tók saman bók um fugla sem hét – og heitir – Ísfygla og þegar sú bók kom út 1995 átti höfundur það mikið efni afgangs að það var eins gott að bæta í og stefna á næstu bók. Hún hefur nú litið dagsins ljós og heitir einmitt Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin.

Bók Sigurðar um fuglana er ekki einasta mikil um sig – hún er rúmar 470 bls. að stærð – heldur er hún einnig mikið þrekvirki sem eykur við bókmenningu okkar Íslendinga og bætir svo um munar í skilninginn á sambúð manns og náttúru sem á sér sérstaka og einstaka sögu hér á landi.

Sigurður tekur fyrir þá 75 fugla sem að mati Náttúru­fræði­stofnunar verpa reglulega hér á landi. Við þá skrá bætir hann við haftyrðli, keldu­svíni og snæuglu og svo hinu séríslenska fyrirbæri, sem er hvera­fuglinn, sú kynduga skepna.

Sem dæmi um efnistök Sigurðar má nefna kaflann um Músarrindilinn, sem er mun merkilegri fugl en halda mætti ef litið er eingöngu til stærðar hans. Í fuglavísi Jóhanns Óla Hilmars­sonar – en til hans vísar Sigurður þegar kemur að líffræði­legum stað­reyndum um þá fugla sem hann segir frá í bók sinni – segir um Músarrindilinn að hann sé einn af einkennis­fuglum birki­skóga á Íslandi, auðþekktur á smæð, hnöttóttu vaxtar­lagi, uppsperrtu stéli og þrótt­miklum söng sem felst í endur­teknum fáeinum löngum og háum tónum sem enda í hvellu dillandi hljóði. Þá segir Jóhann Óli okkur að Múarrindillinn verpi í kjarr­lendi, skóglendi, grónum hraunum og urðum á láglendi og haldi sig á veturna við opna læki, skurði og í fjörum. Íslenskari getur einn fugl varla orðið og þá ber að líta hverju Sigurður bætir við. Hans efnistök eru þjóð­fræðingsins, og þau geta raunar verið býsna marg­breytileg og fjöl­breytt enda er þjóð­fræðinni fátt ef nokkuð óviðkomandi.

Sigurður byrjar á að nefna hin ýmsu önnur heiti, sem músarrindillinn gengur undir og þau eru ekki færri en tíu talsins. Það má teljast mikið, en saman­borið við t.d. hrafninn, eru þau þó frekar fá. En heitin segja ekki alla söguna, eins og vel er ljóst af bók Sigurðar. Þá vitnar Sigurður til Snorra Björns­sonar, prests og fræði­manns á Húsafelli í Borgar­firði, sem kunni meðal annars að greina frá því að þegar reiðar­þrumur gengju taldi músarrindillinn að himininn myndi niður detta og fleygði sér því á bakið og setti upp annan fótinn eins og til að styðja við himininn. Þessi þjóðtrú er ekki einungis íslensk, hana má finna víða erlendis. Þá er einnig vísað í Ferðabók Eggerts og Bjarna frá 18. öld, en þeir segja frá músarrindli (og fleiri fuglum) í Dalasýslu og á Vestfjörðum. Þá er skýrt frá því hvernig músarrindlinum tókst – bæði í íslenskri og erlendri þjóðtrú – að láta kjósa sig konung fuglanna. Það eitt, slægð þessa litla fugl og sá titill, sem honum tekst að krækja í, ætti að veita músarrindlinum mun hærri sess en hann skipar í daglegu lífi okkar.

Músarrindillinn kemur einnig fyrir í galdri og má m.a. lesa að væri hjartað tekið úr músarrindli og sett í hnífs­skaft yrði sá skurður ólæknandi sem maður skæri sig með þeim hníf. Og sannreynt mun það vera að sá sem rjóði blóði músarrindils um augu sín verði sjáandi jafnt á nóttu sem degi. Og vildi maður vita hvað sá hugsaði sem talað var við skyldi maður taka músarrindils­hjarta, þurrka það, binda í hvítt klæði og halda því svo á laun í hægri hendi. Þá myndi hugur þess sem talað var við vera sem opin bók. Þá kunni músarrindill einnig að spá fyrir veðri og því hagnýtt að kunna að lesa í hegðun hans.

En Sigurður leitar ekki einungis fanga í íslenskri þjóðtrú til að skýr­greina hlutverk fuglanna í samskiptum við manninn. Hann fer einnig erlendis og er fróðlegt að bera saman hvað er líkt og ólíkt með þjóðum. Í Færeyjum, Danmörku og Svíþjóð – svo dæmi séu nefnd – er músarrindillinn hinn gagnlegasti veður­spámaður. Á dönsku eyjunni Mön er hann talinn vera galdra­kind, hafmeyja eða sírena í dular­búningi, svo fögur að enginn karlmaður fékk staðist hana. Hún leiddi þá í sjóinn og drekkti þeim. Þegar riddari nokkur var sendur til höfuðs henni, breytti hún sér í músarrindil og tókst þannig að flýja. Þess vegna er leyfilegt að grýta músarrindilinn og drepa hann. Önnur þjóðtrú gengur í allt aðra átt og segir að ef um barna­sjúkdóma væri að ræða, þætti þjóðráð að strjúka músarrindils­vængjum yfir líkamann.

Það er því ýmislegt sem um músarrindilinn má segja og hefur hér þó aðeins verið drepið á örlitlu. Reyndar er kaflanum um músarrindilinn ekki lokið, því að lokum eru birtir tveir vitnis­burði skálda um músarrindilsins. Annars vegar er það ljóð Guðmundar Inga Kristjáns­sonar, sem ort hefur um staðfestu hans, að vilja ekki fara til útlanda eins og margir aðrir fuglar, heldur halda sig við heima­hagana, Ísland, og leggja „yfir lund og bæi lífstrú sína og gleði­hljóm“. Hins vegar er það stutt brot úr Heims­ljósi Halldórs Kiljans Laxness, þar sem segir hvernig auðgast megi af því að veiða músarrindil og meðhöndla hann á sérstakan hátt.

Alls tekur yfir­ferðin um músarrindilinn tólf blaðsíður í bók Sigurðar, ásamt útbreiðslu­korti og fjöl­breytilegu myndefni. Ekki verður annað séð af fljótri skoðun en Sigurður hafi gert efninu eins nákvæm skil og unnt er – bókin hefur enda verið aldar­fjórðung í smiðju, þegar hún kemur nú loks fyrir augu lesenda. Það má í þessu samhengi einnig nefna þau Ásdísi Ívars­dóttur, sem annaðist umbrot bókarinnar af stakri smekkvísi, og Matthías Ægisson, sem hannaði útbreiðslu­kortin og hannaði kápu.

Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin er bók sem kynslóðir geta skoðað saman – það getur tekið margar ljúfar rökkur­stundir að lesa bara um músarrindilinn og velta fyrir sér örlögum hans og þá eru allir hinir eftir – ekki síður forvitni­legir og spennandi verðandi kunningjar, þátt­takendur í því lífríki sem við öll gistum og eigum að þekkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár