Sakborningur í Namibíumálinu laus gegn 7 milljóna tryggingu

Ricar­do Gusta­vo, sem set­ið hef­ur í varð­haldi síð­an í nóv­em­ber 2019 vegna Namib­íu­máls Sam­herja, er laus úr haldi gegn trygg­ingu. Hon­um hef­ur þó ver­ið gert að halda sig heima og þarf að sæta ra­f­rænu eft­ir­lits. Ekki er von á að mál hans og fjölda annarra sak­born­inga verði tek­ið til efn­is­með­ferð­ar hjá dómstólum fyrr en á næsta ári.

Undir eftirliti
Undir eft­ir­liti Þó Ricardo Gustavo þurfi ekki að dúsa á bak við lás og slá lengur er hann ekki frjáls ferða sinna og þarf að mæta fyrir dóm þegar mál hans og hinna sak­born­ing­anna verður tekið til með­ferðar.

Ricardo Gustavo, einum sakborninga í Namibíu­málinu svokallaða í Namibíu, hefur verið sleppt úr varðhaldi gegn tryggingu. Dómari komst að þessari niður­stöðu í morgun, samkvæmt namibískum fjöl­miðlum. Gustavo þarf að reiða fram 800 þúsund Namibíu­dollara tryggingu, jafnvirði um 6,8 milljóna króna. Ákvörðun dómarans var tekin eftir að Gustavo bauðst til að bera stað­setningar­búnað öllum stundum. Slíkum búnaði verður komið fyrir í bíl hans líka. 

Gustavo hefur setið í varðhaldi allt frá því að greint var frá málinu í samstarfi Wikileaks, Kveiks og Stundarinnar undir lok árs 2019 og horfði hann því fram á sín þriðju jól innan fangelsis­múranna. Að óbreyttu munu aðrir sakborningar í málinu, svo sem ráðherrarnir fyrr­verandi Bernhardt Esau og Sacky Shanghala, þurfa að verja lengri tíma í fangelsi á meðan beðið er eftir að mál þeirra fái meðferð fyrir dómstólum. Kröfum þeirra um að vera sleppt úr haldi hefur ítrekað verið hafnað. 

Samkvæmt niður­stöðunni má Gustavo ekki koma innan við 25 kílómetra fjarlægð frá alþjóða­flug­vellinum Windhoek og ekki í innan við eins kílómetra fjarlægð frá öðrum flugvelli. Hann þarf að hafa samband við skilorðs­fulltrúa tvisvar á sólar­hring og verður að halda sig á heimili sínu stærstan hluta dagsins. Þá er honum bannað að hafa samband við nokkurn þann sem tengist Samherja­málinu; vitni eða sakborninga. 

Gustavo var starfs­maður fjár­festinga­félagsins Investec sem stýrt var af James Hatuikulipi, fyrr­verandi stjórnar­formanni namibísku ríkis­útgerðarinnar Fishcor og einn sakborninga. Hann sá um að stofna og halda utan um þau félög sem notuð voru til að taka við kvóta vegna milliríkja­samnings Namibíu og Angóla sem er meðal ákæruefna í málinu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins

Verulegar breytingar voru gerðar á uppbyggingu útgerðar­risans Samherja í fyrra þegar fjár­festingar­starfsemin var aðskilin frá útgerðar­rekstri með stofnun eignarhalds­félagsins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eigendur Samherja ætli sér einnig að færa útgerðar­félagið inn í eignarhalds­félagið Látra­fjöll en skattalegar ástæður geta legið þar að baki.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár