Katrín vill undanþágu frá lögum um varnir gegn hagsmunaárekstrum til að skrifa sögu

Frá því að lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum tóku gildi í byrjun síð­asta árs hafa tveir aðstoð­ar­menn, einn ráðu­neyt­is­stjóri og fjórir skrif­stofu­stjórar beðið um und­an­þágu frá lög­unum til að sinna öðrum störfum, með mis­mun­andi árangri.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Einn ráð­herra, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, hefur óskað eftir und­an­þágu frá lögum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands til að gegna auka­starfi sam­hliða ráð­herra­emb­ætti. Þar sem ráðu­neyti Katrínar er það sem hefur eft­ir­lit með lög­unum þurfti hún að fela öðrum ráð­herra að taka ákvörðun um hvort slík und­an­þága væri í lagi eða ekki. Á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, settur til að fara með málið. Hann á enn eftir að taka ákvörðun um hvort und­an­þágan verði veitt.

Und­an­þág­una þarf Katrín vegna þess að hún er að skrifa bók, glæpa­sögu, með met­sölu­höf­und­inum Ragnari Jónassyni. Verk­efnið er ekki ný til komið né hefur það farið lágt. Ragnar greindi til að mynda frá því í við­tali við breska dag­blaðið The Times fyrir um ári síðan.

Hægt að veita undanþágu

Í byrjun árs í fyrra tóku gildi lög um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum í Stjórn­ar­ráði Íslands. Í þeim segir að störf æðstu stjórn­enda og aðstoð­ar­manna ráð­herra telj­ist full störf. Þeim sé óheim­ilt að sinna auka­störfum sam­hliða störfum í Stjórn­ar­ráði Íslands.

Sam­kvæmt lög­unum getur ráð­herra hins vegar veitt und­an­þágu ef fyr­ir­hugað auka­starf telst til mann­úð­ar­starfa, kennslu- eða fræði­starfa, vís­inda­rann­sókna, list­sköp­unar eða ann­arra og til­fallandi starfa svo fremi að það hafi ekki áhrif á störf við­kom­andi í Stjórn­ar­ráði Íslands og greiðslur fyrir auka­störfin telj­ast innan hóf­legra marka.

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og spurði hvernig eft­ir­liti með fram­kvæmd lag­anna væri háttað, en sam­kvæmt lög­unum er það for­sæt­is­ráð­herra sem sinnir slíku eft­ir­liti og veitir almenna ráð­gjöf um auka­störf. Kjarninn óskaði enn fremur eftir upp­lýs­ingum um hversu margir hefðu óskað eftir und­an­þágu frá því að lögin tóku gildi.

Ráðuneytisstjóri fékk að setjast í stjórn LSR en þurfti svo að hætta

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að því hafi borist und­an­þágu­beiðni frá tveimur aðstoð­ar­mönnum ráð­herra. Í öðru til­vik­inu var Ólafi Elín­ar­syni, aðstoð­ar­manni félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra, veitt und­an­þága til að sitja í stjórn lands­nefndar UN Women á Íslandi en í hinu til­vik­inu var beiðn­inni synjað. For­sæt­is­ráðu­neytið greinir ekki frá því hvaða aðstoð­ar­manni var synjað um að sinna auka­verki né um hvaða auka­verk var að ræða.

Þá var Guðmundi Árnasyni, ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, veitt und­an­þága árið 2021 til þess að sitja í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs starfs­manna rík­is­ins (LSR). Seðla­banki Íslands gerði hins vegar marg­hátt­aðar athuga­semdir við það að einn æðsti stjórn­andi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins sæti í stjórn stærsta líf­eyr­is­sjóðs lands­ins. Slík stjórn­ar­seta gæti auð­veld­lega valdið hættu á hags­muna­á­rekstrum. LSR er til að mynda umsvifa­mik­ill kaup­andi rík­is­skulda­bréfa. Guð­mundur sagði sig úr stjórn­inni eftir að Seðla­bank­inn sendi bréf á ráðu­neytið með gagn­rýni sinni í apríl í fyrra.

Fjórir skrifstofustjórar fengið undanþágu

Fjórir skrif­stofu­stjórar hafa sótt um und­an­þágu frá lög­unum. Fallist var á beiðni þriggja en einn dró beiðni sína til baka áður en hún var afgreidd.

Ekki er til­greint um hverja er að ræða í svari for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins en fyrir liggur að Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri á skrif­stofu efna­hags­mála í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, fékk und­an­þágu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu í apríl 2021 til að taka að sér auka­störf þegar Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, skip­aði hann til að taka við sem for­maður stjórnar Söfn­un­ar­sjóðs líf­eyr­is­rétt­inda. Stjórn­ar­laun for­manns sjóðs­ins eru 320 þús­und krónur á mán­uði.

Í svar­inu segir að end­ingu: „Loks hefur einn ráð­herra óskað eftir und­an­þágu til að gegna auka­starfi en umsóknin er enn í vinnslu.“ Sá ráð­herra er for­sæt­is­ráð­herra sjálfur, líkt og rakið er hér að ofan.

Samkvæmt lög­unum um varnir gegn hags­muna­á­rekstrum á að birta á vef Stjórn­ar­ráðs­ins und­an­þágur sem ráð­herrar, aðstoð­ar­menn þeirra og ráðu­neyt­is­stjórar hafa fengið. Und­an­þágur skrif­stofu­stjóra og sendi­herra eru á hinn bóg­inn und­an­þegnar upp­lýs­inga­skyldu almenn­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár