Stjórnvöld lofa að hækka bæði húsnæðis- og barnabætur

Stjórn­völd kynntu aðgerðir sínar í tengslum við gerð nýrra kjara­samninga fyrir stóran hluta launa­fólks. Fleiri koma til með að fá barna­bætur og húsnæðis­bætur hækka.

Katrín fagnar
Katrín fagnar Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra fagn­aði því að samn­ingar hefðu náðst við stóran hluta launa­fólks. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Forsvars­fólk ríkis­stjórnarinnar kynnti í dag aðgerðir sem ráðast á í tengslum við nýgerða kjara­samninga. Samningar náðust í dag á milli Samtaka atvinnu­lífsins annars vegar og Lands­sambands íslenskra verzlunarmanna og samflots iðnaðar­manna og tækni­fólks hins vegar í morgun. Þegar hafði Starfs­greina­sambandið, utan Eflingar, náð samningum. 

Aðgerðirnar sem stjórn­völd lofa að fara í snúa fyrst og fremst að húsnæðis­málum og barna­bótakerfinu. 

Fjölga á nýjum íbúðum um allt land, bæði til kaups og leigu. Þetta á að nást með ramma­samkomulagi um uppbyggingu íbúða næstu 10 árin, sem felur í sér aukið lóða­framboð og fjár­stuðning til að tryggja íbúða­uppbyggingu. Ríkið ætlar að leggja fram fjögurra milljóna króna stofn­framlag sem á að fara í aukningu á framboði íbúða á viðráðanlegu verði í almenna íbúða­kerfinu.

Þá ætla stjórn­völd að hækka húsnæðis­bætur til leigjenda um 13,8 prósent og hækka tekju­skerðinga­mörk bótanna um 7,4 prósent. Eigna­skerðinga­mörk vaxtabóta munu hækka um 50 prósent í byrjun næsta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Dæmigert... henda meiri pening í málið en leysa það ekki. Hærri bætur verða bara teknar burt með hærri vöxtum og hækkun kostnaðar. Sem er auðvitað bara að pissa í skóinn sinn. En alvöruaðgerðir í húsnæðismálum .. bæði nýbyggingum, lækkun á kostnaði og stöðvun á auðsöfnun auðmanna og stofnana með sinking fund hringekjunni sem þeir hafa búið sér til .... er ekki á boðstólum. Dæmið er nefnilega klassískt sinking fund fraud.. eins og allir sjá sem skoða ...follow the money.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár