Er tími Trumps liðinn?

Þing­kosningarnar í Banda­ríkjunum í vikunni fóru ekki eins og á horfðist. Úrslitin þykja bagaleg fyrir Donald Trump, en fram­bjóðendur sem hann studdi opinber­lega náðu margir litlum árangri. Bandarískir íhalds­menn huga nú að uppgjöri við Trumpismann.

Donald Trump og Melania eiginkona hans á kjörstað í Flórída-ríki.
Donald Trump og Melania eig­in­kona hans á kjör­stað í Flórída-ríki. Mynd: EPA

Nýafstaðnar þing­kosningar í Banda­ríkjunum fóru ekki eins og skoðana­kannanir í aðdrag­anda þeirra bentu til. Repúblikanar, sem reiknuðu með því að ná rúmum meirihluta í fulltrúa­deild þingsins og jafnvel meirihluta í öldunga­deildinni einnig, virðast ekki ætla að hafa nema nauman meirihluta í fulltrúa­deildinni og sennilegast er að demó­kratar haldi meirihluta sínum í öldunga­deildinni.

Í reynd er frammistaða Repúblikana­flokksins sú versta sem stjórnar­andstöðu­flokkur hefur náð í þing­kosningum á miðju kjör­tímabili forseta frá árinu 2002, er vinsældir George W. Bush í kjölfar hryðjuverka­árásanna í New York skiluðu flokki hans góðri niður­stöðu, og demó­krötum síðri.

Niður­staða kosninganna virðist nú ætla að leiða til uppgjörs innan Repúblikana­flokksins, uppgjörs við Donald Trump og þá braut sem hann hefur leitt flokkinn á. Mörgum þykir ljóst að áherslur hans séu ólíklegar til þess að koma flokknum til valda að nýju.

Murdoch-veldið lætur Trump heyra það

Fjöl­miðlar í eigu ástralska auðkýfingsins Rupert Murdoch hafa í vikunni virst á einu máli um það hverju slæleg frammistaða Repúblikana­flokksins sé helst um að kenna: Donald Trump.

Murdoch-veldið er áhrifa­mikið á hægri kantinum í bandarísku fjölmiðla­flórunni, en Murdoch á sjónvarps­stöðina Fox, auk dagblað­anna New York Post og Wall Street Journal. Í forsetatíð Trumps þóttu miðlar í eigu Murdochs fremur hlið­hollir forsetanum fyrr­verandi í ritstjórnar­skrifum, en nú er heldur betur annað uppi á teningnum.

Á forsíðu New York Post á fimmtudag var Trump teiknaður upp sem barnateiknimyndafíguran Humpty Dumpty (sem á íslensku hefur verið kallaður Eggert eggja­strákur) undir fyrir­sögninni „Trumpty Dumpty“ og meðfylgjandi var texti sem gaf í skyn að hann hefði beðið mikinn ósigur. Spurt var hvort hægt yrði að tjasla Repúblikana­flokknum saman á ný.

Í ritstjórnarpistli frá Wall Street Journal var Trump svo kennt um ófarir flokksins, og bent á að mýmargir fram­bjóðendur sem hann studdi í forvali Repúblikana­flokksins náðu ekki kjöri í lykil­ríkjum barátt­unnar. „Trump er stærsti lúserinn í Repúblikana­flokknum“ var fyrirsögn pistilsins, og í undir­fyrirsögn sagði að nú hefði Trump „floppað“ í fernum kosningum í röð, 2018, 2020, í auka­kosningunum í Georgíu árið 2021 og 2022.

Í greininni í Wall Street Journal var auk annars fjallað um stuðning Trump við sjónvarps­lækninn Mehmet Oz, sem tapaði öldunga­deildar­slagnum í Pennsylvaníu-ríki gegn John Fetterman fram­bjóðanda Demókrata­flokksins. Sú niður­staða þótti sýna fram á að Oz hefði verið arfa­slakur fram­bjóðandi, enda náði hann ekki að landa sigri þrátt fyrir að hafa þá forgjöf að mótframbjóðandi hans varð fyrir því að fá heila­blóðfall fyrr á árinu, sem hann er enn að jafna sig á.

Í grein Wall Street Journal og víðar hefur svo verið bent á að þrátt fyrir að í ýmsum ríkjum hafi stuðnings­yfirlýsing frá Trump dugað til þess að tryggja fram­bjóðendum sigur í próf­kjörum innan Repúblikana­flokksins, hafi þeir fram­bjóðendur sem Trump veitti yfir­lýstan stuðning ekki náð að höfða til óflokks­bundinna kjósenda.

Eitt skýrasta dæmið um það var sennilega í ríkinu New Hampshire. Don Bolduc, sem Trump hafði stutt í embætti öldungar­deildar­þingmanns, tapaði þar sann­færandi gegn Maggie Hassan, sitjandi þingmanni demókrata. Á sama tíma náði repúblikaninn Chris Sununu endur­kjöri sem ríkis­stjóri í New Hampshire með miklum mun – og hann naut ekki stuðnings Trumps.

Í Georgíu-ríki virðist ríkis­stjórinn Brian Kemp svo hafa notið góðs af því að fjarlægja sjálfan sig Trump og stefnu hans, en Kemp hefur verið gagn­rýninn á forsetann fyrr­verandi og síendurteknar ásakanir hans og fylgis­manna hans um að rangt hafi verið haft við í forseta­kosningunum árið 2020.

Kemp rúllaði upp ríkisstjóra­kjörinu í baráttu við demó­kratann Stacey Abrams en á sama tíma er nær öruggt að grípa þurfi til auka­kosninga á milli Herschel Walker, sem Trump studdi til öldunga­deildar­sætisins í ríkinu, gegn sitjandi þingmanni Demókrata­flokksins, Raphael Warnock.

Valdabaráttan hafi skaðað flokkinn

Flokks­forysta Repúblikana­flokksins í Michigan-ríki, þar sem flokkurinn beið ósigra á nær öllum vígstöðvum, hefur þegar hafið uppgjör á kosningunum. Í minnis­blaði frá framkvæmda­stjóra flokksins í ríkinu sem sent var út á fimmtudag sagði að flokks­forystan hefði þurft að takast á við valdatafl á milli stuðnings­manna Trumps og andstæðinga hans innan flokksins í aðdrag­anda kosninganna.

Þessi valda­barátta hefði skaðað frammistöðuna, ekki síst þar sem hún hafi haft áhrif á framlög til kosninga­baráttunnar.

Ýmsir innan Repúblikana­flokksins hafa á undan­förnum dögum gefið í skyn að úrslit kosninganna sýni að tími Trumps sé liðinn. Liz Cheney, þingkona flokksins frá Wyoming-ríki og ákafur gagn­rýnandi Trumps, sem reyndar galt fyrir andstöðu sína við forsetann í prófkjöri flokksins í ríkinu í sumar, sagði að úrslit kosninganna væru sigur fyrir „venjulega liðið“ innan Repúblikana­flokksins.

Þrátt fyrir það hefur verið búist við því að Trump tilkynni að hann muni bjóða sig fram til forseta að nýju strax í komandi viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár