Segir ágætt svigrúm til launahækkana

Stefán Ólafsson segir miklar arðgreiðslur fyrir­tækja og launa­hækkanir forstjóra sýna að svigrúm til bættra kjara starfs­manna þeirra sé ágætt.

Stefán Ólafsson, sérfræðingur hjá Eflingu stéttarfélagi.
Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu stétt­ar­fé­lagi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stað­hæfingar atvinnu­rekenda um að ekkert svigrúm sé til launa­hækkana er óvenju langt frá veru­leikanum í komandi kjara­samningum, líkt og miklar launa­hækkanir forstjóra fyrir­tækja hérlendis og arðgreiðslur til hluthafa sýna. Þetta skrifar Stefán Ólafsson, prófessor emeritus í félags­fræði við Háskóla Íslands og sérfræðingur hjá Eflingu, í grein sinni í nýjasta tölublaði Vísbendingar.

Víða veisla í atvinnulífinu

Samkvæmt Stefáni eru þjóð­hagsspár bæði Seðla­bankans og Hagstofu bjartar og að gera mætti ráð fyrir uppsveiflu þrátt fyrir að eitthvað gæti hægt á henni vegna stríðsins í Úkraínu. Hann segir að Lífs­kjara­samningurinn árið 2019 hafi verið gerður við óhag­stæðari skilyrði, þar sem þá hafi verið búist við minnkandi hagvexti.

Að undan­tekinni ferða­þjónustunni, sem gæti þó lagast hratt þegar ferða­mönnum fer að fjölga á ráði, segir Stefán að staða flestra fyrir­tækja sé nú með miklum ágætum. Því til stuðnings bendir hann að búist sé við metári í arðgreiðslum í ár, auk þess sem stjórn­endur fyrir­tækjanna hafi hækkað mikið í launum. „Það er því víða veisla í atvinnu­lífinu,“ bætir hann við.

Stefán segir meðallaun forstjóra í skráðum fyrir­tækjum hafa hækkað um 8,5 prósent á milli ára, sem sé vel umfram hækkanir á almennum vinnu­markaði. Alls hækkuðu mánaðar­laun þeirra um 444 þúsund krónur á mánuði í fyrra, á meðan almenn hækkun launa­fólks hafi verið tæp 16 þúsund krónur á ári.

Þar að auki bætir Stefán við að stjórn­endur hafi verið að taka stærri hluta launa sinna sem bónusa og kaupréttar­samninga, en algengt sé að bónusar geti bætt allt að fjórðungi ofan á árslunin og að kaup­réttir geti skilað tugmilljörðum í hagnaði.

Launahækkanir til lágtekjufólks og sem vörn gegn verðbólgu

Stefán ber einnig saman þróun ráðstöfunar­tekna eftir tekju­tíundum á síðustu áratugum, en þar segir hann blasa við að hagur tekju­hæstu tíundarinnar hafi batnað mest, bæði í góðærinu fyrir hrun og í efnahags­uppsveiflunni eftir árið 2012. Lífs­kjara­samningurinn hafi bætt hlut þeirra lægst launuðu, en einungis að hluta, og því sé ástæða til að ganga enn lengra í komandi kjara­samningum með krónutölu­hækkunum.

Samkvæmt Stefáni er einnig mikilvægt að hækka þurfi laun í komandi kjara­samningum til að vinna gegn hækkandi verðbólgu, sem sé að stærstum hluta vegna misheppnaðrar hagstjórnar á sviði húsnæðis­mála.

Aðrar leiðir mögulegar

Ef hlífa á fyrir­tækjum við miklum launa­hækkunum segir Stefán að stjórn­völd geti einnig bætt kjör lægri tekjuhópa á aðra vegu. Sem dæmi um slíkt nefnir hann auknar milli­færslur úr velferðar­kerfinu – þ.e.a.s. hærri barna­bætur, vaxta­bætur og húsaleigu­bætur – en samkvæmt Stefáni hafa þessar bóta­greiðslur veikst verulega á síðustu árum og alls ekki haldið í við þarfir.

Stefán bendir á að barna­bætur á Íslandi séu langt fyrir neðan það sem almennt er í Norður­löndum og á megin­landi Evrópu. Einnig hafi vaxta­bætur því sem næst horfið á síðustu átta árum, sem gerir eigna­myndun í íbuðarhúsnæði hægari og eykur þannig misskiptingu í eignum. Þar að auki segir Stefán að draga þurfi úr „ofur­skerðingum“ lífeyris í almanna­tryggingu með umtals­verðri hækkun frítekju­marks.

Hægt er að lesa grein Stefáns í heild sinni með því að gerast áskrifandi að Vísbendingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár