Tvær konur til viðbótar saka Trump um kynferðislega áreitni

Tvær konur, til viðbótar við þær fjórar sem áður höfðu gefið sig fram, hafa stigið fram og saka Donald J. Trump, forseta­fram­bjóðanda Repúblikana­flokksins, um kynferðis­lega áreitni og ósæmilega hegðun í garð þeirra. 

Trump hefur sjálfur svarað því til að þetta séu „lygarar" og að þær séu „óaðlaðandi", að því er fram kemur í umfjöllun New York Times.

Önnur þeirra sem nú hefur stigið fram, Summer Zervos, var á meðal keppenda í fimmtu sjónvarps­þátta­röðinni af Lærlingnum (Apprentice), þar sem þátt­takendur reyndu að fá vinnu í einu af fyrir­tækjum Trumps. Washington Post greindi fyrst frá málinu, og veit konurnar báðar viðtal vegna þessara áskana.

Hin konan heitir Kristin Anderson og segir að Donald Trump hafi káfað á afturenda hennar þar sem hún þjónaði til borðs á veitinga­húsi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár