Félög í eigu Samherja hafa frá árinu 2012 greitt mörg hundruð milljónir króna í mútur til einstaklinga sem eru tengdir sjávarútvegsráðherra Namibíu, Bernhard Esau, til að tryggja fyrirtækinu aðgang að fiskveiðikvóta í landinu.
Í gögnum sem Stundin hefur undir höndum um útgerð Samherja í Namibíu koma fram stórfelldar greiðslur, á annan milljarð króna, til aðila sem taka ákvarðanir um sjávarútvegsmál fyrir hönd namibíska ríkisins. Stundin hefur unnið úr gögnunum í samstarfi við Wikileaks, fréttaskýringaþáttinn Kveik í Ríkissjónvarpinu og katörsku sjónvarpsstöðina Al Jazeera. Auk þess að greiða mútur hefur Samherji komið á fót vef aflandsfyrirtækja þar félagið stundar fjármagnsflutninga með litlu gagnsæi og óljósum skattgreiðslum, en Stundin fjallar um aflandsfléttu Samherja í annarri grein.
Rannsakað sem spilling
Einn af mönnunum sem þegið hafa greiðslurnar frá Samherja er James Hatuikulipi, stjórnarformaður ríkisfyrirtækis sem heitir Fishcor sem meðal annars úthlutar kvóta til útgerðarfélaga í landinu. Annar sem fengið hefur fengið greitt er frændi James og tengdasonur sjávarútvegsráðherrans, Tamson „Fitty“ Hatuikulipi. Þriðji maðurinn er núverandi dómsmálaráðherra Namibíu, Sacky Shangala, sem er einn af höfuðpaurunum í skipulagningu viðskiptanna en hann var meðal annars eigandi að einu fyrirtæki sem fékk greitt frá Samherja. Sá fjórði er svo Mike Nghipunya, forstjóri ríkisfyrirtækisins Fishcor, sem Jóhannes segir að hafi fengið greiðslur frá Samherja í gegnum milliliði.
Stofnun í Namibíu sem rannsakar spillingu, ACC (Anti Corruption Committee), er nú með málið inni á borði hjá sér til rannsóknar en mútugreiðslur til ráða- og stjórnmálamanna eru ólöglegar þar í landi rétt eins og á Íslandi. Efhahagsbrotadeild lögreglunnar í Namibíu er einnig að rannsaka málið. Þá eru angar málsins til skoðunar í fleiri löndum, meðal annars hjá efnahagsbrotadeildinni í Noregi, Ökokrim, þar sem grunur um peningaþvætti innan samstæðu Samherja er til athugunar, og einnig á Íslandi þar sem embætti héraðssaskóknara hefur fengið upplýsingar um málin.
Milljarða tekjur Samherja í Namibíu
Samherji er langstærsta útgerðarfélag Íslands þegar tekið er tillit til innlendrar og erlendrar starfsemi og er með 110 milljarða króna í eigið fé - eignir mínus skuldir. Útgerðarfélagið hefur hagnast um 112 milljarða króna á milli áranna 2011 og 2019 og hefur Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri félagsins, meðal annars byggt upp eignarhaldsfélag í kringum hlutabréfaeign sína í Samherja sem á 48 milljarða króna eignir og skuldar ekkert. Hluta þessa mikla hagnaðar má rekja til starfsemi Samherja í Afríku.
Áður en Samherji hóf veiðar í Namibíu árið 2012 stundaði félagið veiðar við Máritaníu og Marokkó frá árinu 2007 í gegnum Kötlu Seafood á Kanaríeyjum. Samherji hagnaðist verulega á þessum veiðum en um 1/3 hluta tekna Samherja mátti rekja til þeirra. Útgerð Samherja í Namibíu er minni en ætla má að um 10 prósent árstekna Samherjasamstæðunnar, tekna sem verið hafa á milli 70 og 90 milljarðar króna einstaka ár, hafi komið frá henni eða fleiri milljarðar króna á hverju ári.
Þó fjölmiðlar hafi margoft í gegnum tíðina fjallað um aflandsviðskipti Samherja á Kýpur þá hafa hafa skattaskjólin á Marshall-eyjum og Máritíus sem gögnin sýna fram á að Samherji notar í viðskiptum sínum hingað til ekki komið fram í umræðunni um útgerðarfyritækið. Enn síður hefur sú staðreynd komið fram að Samherji greiðir mútur til að fá aðgang að kvótum í Afríku, meðal annars með greiðslum til Dubaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum frá félagi sínu á Kýpur, Esju Seafood, sem kalla má miðpunkt alþjóðlegrar starfsemi akureyska útgerðarfélagsins.
Hálfur milljarður til félags í Dubaí
Samherji hefur meðal annars greitt rúmlega 4 milljónir dollara, nærri hálfan milljarð króna, til fyrirtækis í Dubaí, Tundavala Investment Limited, sem er í eigu stjórnarformanns ríkisfyriritækisins Fishcor í Namibíu, á árunum 2014 til 2019 til að liðka fyrir aðgengi fyrirtækis Samherja í Namibíu að fiskveiðikvóta í landinu og í Angóla. Þetta er áðurnefndur James Hatuikulipi og er hann náfrændi tengdasonar Bernhard Esau sjávarútvegsráðherra, Fitty Tamson Hatuikulipi. Eiginkona Fitty og dóttir Esau sjávarútvegsráðherra heitir Ndapandula.
Greiðslurnar fara meðal annars í gegnum Esju Seafood Limited, eignarhaldsfélag og fisksölufyrirtækis Samherja á Kýpur, og Noa Pelagic Limited, annars Samherjafélags á Kýpur.
Þá eru greiðslur frá félögum Samherja til félaga þessara einstaklinga í Namibíu upp á meira en hálfan milljarð króna til viðbótar.
Uppljóstrari lýsir mútum og arðráni
Greiðslurnar eru kallaðar „ráðgjafagreiðslur“ hjá Samherja en fyrrverandi framkvæmdastjóri Samherja í Namibíu á árunum 2012 til 2016, Jóhannes Stefánsson, segir að um mútugreiðslur sé að ræða en í sambærilegum spillingarmálum þar sem mútur koma við sögu er algengt að greiðslurnar séu kallaðar öðrum nöfnum.
Athugasemdir