Góður svefn er verndandi

Dr. Erna Sif Arn­ar­dóttir segir mik­il­vægt að góður svefn, hreyf­ing og hollt matar­æði hald­ist í hendur. En það skiptir ekki bara máli að borða hollt og hreyfa sig, heldur skiptir máli hvenær það er gert. Lík­ams­klukkan raskast ef svefn­inn fer úr skorðum og það skapar marg­þættan vanda.

Góður svefn er verndandi

Svefn er grunn­stoð í heilsu og það hefur komið æ betur í ljós og orðið við­ur­kennt, segir Erna Sif, dós­ent við verk­fræði- og tölv­un­ar­fræði­deildir Háskól­ans í Reykja­vík, svefn­fræð­ingur og jafn­framt for­stöðu­maður Svefn­set­urs í HR. Fólk hafi harkað af sér þrátt fyrir minni svefn og viljað vera dug­legt. „Við sjáum það betur og betur að það gengur ekki til lengdar, við verðum að hvíla okkur og sofa. Nú hefur Alþjóða­heil­brigð­is­stofn­unin við­ur­kennt svefn sem mik­il­vægan í heila­heilsu, í allri vit­rænni getu, og amer­ísku hjarta­sam­tökin sett svefn sem einn af átta grunn­þáttum í heilsu sem skipta miklu máli fyrir hjartað og æða­kerfið en við þurfum að gera enn betur,“ segir hún.

„Svefn skiptir líka máli varð­andi alls konar tauga­sjúk­dóma og tauga­hrörnun, en góður svefn er vernd­andi. Það er aðeins umdeilt með hvaða hætti það er en nýlegar rann­sóknir sýna að kerfi í heil­anum sem kall­ast glymphatic system, sem er nokk­urs konar sog­æða­kerfi …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár