Stjórnmálaflokkar halla sér upp að stórveldum

Í nýrri heims­mynd, með vax­andi ólgu og víg­bún­aði á alþjóða­vísu, velja íslenskir stjórn­mála­flokkar sitt stór­veldið hver.

Stjórnmálaflokkar halla sér upp að stórveldum
Flokkar undir fánum Kristrún Frosta­dóttir, Sam­fylk­ingu, og Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, Viðreisn, hafa lagt höf­uð­á­herslu á sam­bandið við Evrópu. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son í Mið­flokknum vill tengj­ast Banda­ríkj­unum. Sós­í­alistar horfa til Kína. Mynd: Samsett / Heimildin

Vaxandi spenna og átök á alþjóða­vett­vangi eru farin að spegla íslensk stjórn­mál. Flokkar lands­ins halla sér nú í auknum mæli upp að sitt hvorum valdapólnum í heim­inum, sem end­ur­speglar sam­hljóm og tog milli mis­mun­andi stjórn­kerfa og stjórn­mála­stefna. 

Vill verðlauna Bandaríkjaforseta

Eftir lands­þing Mið­flokks­ins 10. til 12. októ­ber hefur Mið­flokk­ur­inn tekið af allan vafa um að flokk­ur­inn stefnir í átt að auk­inni þjóð­rækni eða þjóð­ern­is­hyggju og beinir spjótum sínum að inn­flytj­endum, undir því yfir­skini að verja þjóð­ina breyt­ingum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, end­ur­kjör­inn for­maður flokks­ins, lagði höf­uð­á­herslu á þjóð­rækni og heil­brigða skyn­semi, í ræðu sinni, en undir það flokk­aði Sig­mundur útlend­inga­mál, þar sem „ekk­ert sam­fé­lag [fengi] þrif­ist ef það hefur ekki vilja til að vernda hóp­inn“. Mið­flokk­ur­inn hefur tekið upp slag­orðið „Ísland fyrst, svo allt hitt“, sem er end­ur­ómur af slag­orði Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta, „Banda­ríkin fyrst“. 

Nýkjör­inn vara­for­maður, Snorri Másson, tók sömu­leiðis af allan vafa um það í …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár