Katrín bendir lögreglunni á starfsmenn Seðlabankans vegna samskipta við fréttamann

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra bendir lögreglunni á að rannsaka starfs­menn Seðla­bankans vegna samskipta við frétta­mann Ríkis­útvarpsins. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur kært fimm stjórn­endur Seðla­bankans og vill koma fyrr­verandi seðla­bankastjóra í fangelsi. Bréf forsætis­ráðherra til lögreglu er nú í höndum Stöðvar 2 og bréf Seðla­bankans til forsætis­ráðherra er komið til mbl.is.

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir For­sæt­is­ráð­herra afl­aði upp­lýs­inga um sam­skipti Seðla­bank­ans við fjöl­miðla­mann og vís­aði síðan lög­regl­unni á starfs­mann bank­ans. Mynd: Pressphotos.biz

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra hefur sent bréf á Lögregluna á höfuð­borgar­svæðinu og greint frá samskiptum starfs­manns Seðla­banka Íslands við frétta­mann Ríkis­útvarpsins undir þeim formerkjum að hugsanlega hafi starfs­maðurinn eða annar starfs­maður brotið lög með því að veita frétta­manni upplýsingar. 

Aðdragandi málsins er að Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur kvartað undan stjórnvalds­sekt Seðla­bankans sem lögð var á Samherja vegna meintra brota á gjaldeyris­viðskiptum með undir­verð­lagningu á fiski, sem rannsökuð voru með húsleit árið 2012. Þorsteinn hefur kært fimm starfs­menn Seðla­bankans og heitið því að koma Má Guðmunds­syni, fyrr­verandi seðla­bankastjóra, í fangelsi, eftir að stjórnvalds­sekt bankans gegn Samherja var dæmd ólögmæt. Einn þessara starfs­manna er Ingibjörg Guðbjarts­dóttir, fyrr­verandi framkvæmda­stjóri gjaldeyris­eftirlits bankans, sem átti í samskiptum við frétta­mann Ríkis­útvarpsins og fékk upplýsingar frá honum. Fram kemur að engar trúnaðar­upplýsingar hafi borist frá starfs­manninum til frétta­mannsins í samskiptunum sem rannsökuð voru.

Forsætisráðherra rannsakaði málið

Samkvæmt umfjöllun Stöðvar 2 segir Katrín í bréfi sínu til lögreglunnar að háttsemin, að veita fjölmiðli upplýsingar um húsleit, „kunni að fela í sér refsivert brot“. Katrín óskaði sjálf upplýsinga frá Seðla­bankanum um málið  og fékk svör í apríl. Hún svaraði síðar bréfinu í september. Samkvæmt frétt Mbl.is hefur Morgun­blaðið bréf Seðla­bankans til forsætis­ráðherra 18. ágúst síðastliðinn undir höndum. Þá hefur Stöð 2 undir höndum bréf Katrínar til Lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu. Vitnað er í bréfið í frétt Vísis.is: „Þá kemur fram í bréfinu að áður hafi komið fram að gjaldeyris­eftirlitið hafi verið í sambandi við frétta­mann RÚV vegna upplýsinga sem frétta­maðurinn veitti því. Samskiptin virðist hafa tengst því og í engum póstanna séu trúnaðar­upplýsingar sendar frétta­manninum. Í einum póstinum sem sendur var daginn fyrir húsleitina virðist sem frétta­maðurinn hafi haft upplýsingar um húsleitina. Ekkert svar við póstinum sé að finna í pósthólfi framkvæmda­stjórans.“

Bankinn dæmdur til að veita aðrar upplýsingar

Þvert gegn grun­semdum forsætis­ráðherra um að starfs­maður Seðla­bankans hafi brotið lög með samskiptum við frétta­mann var Seðla­banki Íslands nýlega talinn hafa brotið gegn lögum með því að veita ekki upplýsingar til frétta­manns.

Seðla­bankinn var í síðustu viku dæmdur fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur til þess að afhenda blaða­manni Frétta­blaðsins samning sem bankinn gerði við sama starfs­mann og átti í tölvupóst­samskiptum við frétta­mann, Ingibjörgu Guðbjarts­dóttur, vegna styrks sem bankinn veitti henni til að stunda nám við Harvard-háskóla.

Vill seðlabankastjórann í fangelsi

Hæstiréttur Íslands úrskurðaði í nóvember síðastliðnum að Seðla­bankinn hefði ekki haft þá heimild sem bankinn taldi sig hafa, til þess að leggja stjórnvalds­sekt á Samherja vegna gjaldeyris­viðskipta. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sagði í tilefni dómsins ítrekað að Már Guðmundsson færi í fangelsi vegna málsins. „Það er að segja að ég held að það sé nokkuð ljóst að Már Guðmundsson er á leiðinni í fangelsi. Núna þarf bankaráð að bera ábyrgð. Auðvitað á Már Guðmundsson að fara úr bankanum. Mér fyndist það ótrúlegt ef að fólk ætli að sitja uppi með mann til að stjórna Seðla­banka Íslands sem er á leið í fangelsi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár