Listin og lífið renna saman

Heið­urs­lista­maður Sequences þetta árið er Kristinn Guð­brandur Harð­ar­son sem hefur átt langan feril. Hann seg­ist aldrei hafa séð eftir því að feta veg mynd­list­ar­innar, enda hafi hann aldrei átt val. Samhliða Sequences gefur hann út bók­verk, þar sem texti og myndir eiga í sam­tali á síð­unum.

Listin og lífið renna saman
Vinnur heima Kristinn vinnur verk sín í sól­stofu heima hjá sér sem rennur saman við stof­una. Hann seg­ist þó ekki bund­inn við einn stað, heldur geta stungið sér niður hvar sem er til að vinna verk sín. Verra sé að finna öllum verk­unum pláss, enda sé magnið „hrylli­legt“ eftir langan feril. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Ég gæti alveg eins reynt að svara því hvert sé gildi lífs míns. Þetta rennur saman, ein­hvern veg­inn, listin og lífið,“ segir Kristinn Guð­brandur Harð­ar­son, heið­urs­lista­maður Sequences í ár, þegar hann fær þá spurn­ingu hvert gildi list­ar­innar er í hans lífi. „Að vera lista­maður er ekki venju­leg vinna, þú veist aldrei almenni­lega hvenær þú ert að vinna og hvenær þú ert í fríi. Listin gefur mér mikið og ég hef aldrei séð eftir því að feta þessa braut. Ég held reyndar að það sé eins með mig eins og svo marga aðra sem ég þekki – ég hafði aldrei neitt val, það var eins og listin væri valin fyrir mig. Þetta er bara í mönnum. Þettta hljómar kannski til­gerð­ar­lega en ég sé þetta líka í nem­endum sem eru að byrja í mynd­list­inni. Það eru ákveðnir nem­endur sem eru bara eins og þeim sé stungið í sam­band. Það er bara eitt­hvað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár