Björgólfur Thor lítið sýnilegur á Íslandi

Björgólfur Thor er aðeins stjórn­ar­maður í einu íslensku félagi, þrátt fyrir að vera lang­rík­asti Íslend­ing­ur­inn. Tveir helstu sam­verka­menn Björg­ólfs Thors eru stærstu hlut­hafar leigu­fé­lags­ins Ásbrúar á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu. Eign­ar­haldið er í gegnum Lúx­em­borg. Talskona Björg­ólfs segir hann ekki tengj­ast félag­inu, þótt heim­il­is­föngin fari saman.

Björgólfur Thor lítið sýnilegur á Íslandi
Sagður ekki tengj­ast leigu­fé­lag­inu Ragn­hildur Sverr­is­dóttir segir að Björgólfur Thor eigi ekk­ert í leigu­fé­lag­inu Ásbrú en tveir af hans nán­ustu aðstoð­ar­mönnum og ráð­gjöfum, Andri Sveins­son og Birgir Már Ragn­ars­son, eru stærstu hlut­haf­arnir í gegnum félag í Lúx­em­borg. Mynd:

Tveir af  nán­ustu sam­verka- og aðstoð­ar­mönnum Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar fjár­festis í gegnum árin, Andri Sveins­son og Birgir Már Ragn­ars­son, eru stærstu hlut­hafar leigu­fé­lags­ins Ásbrúar í gegnum félag í Lúx­em­borg sem þeir eru skráðir eig­endur að. Félag þeirra er stærsti ein­staki eig­andi stærsta hlut­hafans, sem á 90 pró­senta hlut, og eiga þeir 28 pró­senta hlut í honum. 

Ásbrú er eitt af þeim félögum sem keypti fast­eignir á gamla varn­ar­liðs­svæð­inu á Mið­nes­heiði af rík­is­fyr­ir­tæk­inu Kadeco fyrir nokkrum árum. Samtals keypti Ásbrú ehf. 470 íbúðir af Kadeco árið 2016. Ásbrú hefur síðan selt hluta af íbúð­unum en leigir hluta þeirra út.

Stærsti eig­andi Ásbrúar er félagið P190 ehf. Þeir Andri og Birgir Már hafa unnið hjá fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Björg­ólfs Thors, Novator, í á annan ára­tug og eru einnig hlut­hafar í félag­inu. Þeir eiga saman félagið Omega S.á.r.l. í Lúx­em­borg sem á 28 pró­senta hlut í P190 ehf., stærsta hlut­hafa leigu­fé­lags­ins í gegnum íslenska félagið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Leigumarkaðurinn

Telja mikið eignarhald hagnaðardrifinna leigufélaga skýra skarpar verðhækkanir á Suðurnesjum
FréttirLeigumarkaðurinn

Telja mikið eign­ar­hald hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga skýra skarpar verð­hækk­anir á Suð­ur­nesjum

Leigu­verð heldur áfram að hækka víð­ast hvar á land­inu sam­kvæmt nýjasta mán­að­ar­riti Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar. Athygli vekur að verð fyrir leigu­í­búðir á Suð­ur­nesjum hefur hækkað óvenju hratt á síð­ustu sex mán­uðum. Telja skýrslu­höf­undar að það megi rekja til óvenju hás hlut­falls leigu­í­búða í eigu ein­stak­linga og hagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga.
Óheyrilegar verðhækkanir á leigumarkaði: „Þeir eru eins og óðir hanar í mannaskít“
NeytendurLeigumarkaðurinn

Óheyri­legar verð­hækk­anir á leigu­mark­aði: „Þeir eru eins og óðir hanar í manna­skít“

Aug­lýs­ing sem birt­ist á fast­eigna­vefnum Igloo hefur vakið mikla athygli og umræðu. Þar er fjög­urra her­bergja íbúð í Reykja­vík aug­lýst til leigu fyrir 550.000 krónur á mán­uði. Guð­mundur Hrafn Arn­gríms­son, for­maður Leigj­enda­sam­tak­anna, segir stöð­una vera grafal­var­lega. Hann segir mörg heim­ili á leigu­mark­aði búi í dag við grimmi­lega og kerf­is­bundna fjár­kúgun.
Staða fjölskyldna á leigumarkaði hríðversnar milli ára
FréttirLeigumarkaðurinn

Staða fjöl­skyldna á leigu­mark­aði hríð­versnar milli ára

Samkvæmt nið­ur­stöðum leigukönn­unar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar versn­aði samn­ingstaða leigj­enda gagn­vart leigu­sölum umtals­vert milli áranna 2022 og 2023. Könnunin bendir einnig þess að bæði hafi leigu­verð hækkað og fram­boð á hús­næði við hæfi dreg­ist saman milli ára. Þróunin leggst þyngst á fjöl­skyldur sem bjuggu við þrengri kost árið 2023 í sam­an­burði við árið 2022.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár