Stefnir í annað ár af hallarekstri Seltjarnarness

Rekstur Sel­tjarn­ar­nes­bæjar var 158 millj­ónum króna undir áætlun á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Gjald­skrá leik­skóla og frí­stundar var hækkuð um 10 pró­sent í sumar, en boðað er að þjón­usta verði skorin niður.

Stefnir í annað ár af hallarekstri Seltjarnarness
Ásgerður Hall­dórs­dóttir Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur stýrt Sel­tjarn­ar­nesi frá því að bær­inn fékk kaup­stað­ar­rétt­indi árið 1974.

Rekstur Sel­tjarn­ar­nes­bæjar var tals­vert undir áætl­unum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins að því fram kemur í rekstr­ar­yf­ir­liti bæj­ar­ins. Afkoman var 158 milljón krónum undir áætlun og stefnir í að Sel­tjarn­ar­nes­bær verði rek­inn með halla eins og í fyrra.

Í yfir­lit­inu er því spáð að 60 milljón króna halli verði á rekstri Sel­tjarn­ar­nes­bæjar í ár, en hall­inn var 264 millj­ónir árið 2018. Skatt­tekjur á fyrri hluta árs voru 50 millj­ónum króna undir áætlun og segir í til­kynn­ingu að útgjalda­aukn­ing vegna fræðslu­mála og félags­þjón­ustu hafi skori sig úr varðar útgjalda­aukn­ingu. „Eru útgjöld vegna mál­efna fatl­aðra og barna­vernd­ar­mál orðin afar íþyngj­andi fyrir bæinn,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Bæjarráð sam­þykkti í sumar að hækka gjald­skrár leik­skóla og frí­stundar um 10 pró­sent. „Unnið er að aðgerðum til að ná jafn­vægi í fræðslu­málum og félags­þjón­ust­unni,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Ljóst er að hag­ræða þarf á ein­hverjum víg­stöðvum og/eða skera niður þjón­ustu. Rekstur ann­arra mála­flokka er í jafn­vægi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár