Fékk tíföld árslaun starfsmanns í starfslokagreiðslur

Með­al­laun starfs­manns Arion banka á einu ári, ásamt launa­tengdum kostn­aði, eru einn tíundi hluti af starfs­loka­greiðslum til banka­stjór­ans, Hösk­uldar Ólafs­sonar sem lét af störfum í vor. Stöðu­gildum hefur fækkað um 69 frá árs­lokum 2017.

Fékk tíföld árslaun starfsmanns í starfslokagreiðslur
Hösk­uldur Ólafsson Banka­stjór­inn starf­aði hjá Arion banka í níu ár. Mynd: Bernhard Kristinn Ingimundarson

Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri Arion banka sem lét af störfum í vor, fékk 150 millj­ónir króna greiddar vegna starfs­loka, að því fram kemur í árs­hluta­reikn­ingi bank­ans. Er sú upp­hæð á við tíföld árs­laun starfs­manna að með­al­tali.

Árið 2018 greiddi Arion banki tæpa 14,3 millj­arða króna í laun og launa­tengd gjöld til starfs­manna sam­stæð­unnar. Starfs­menn hennar voru í 928 stöðu­gildum að með­al­tali á árinu og má því áætla að með­al­laun starfs­manns á árinu hafi verið um 15,4 millj­ónir ásamt líf­eyr­is­greiðslum og öðrum launa­tengdum gjöldum. Er það tæp­lega tíu sinnum lægri upp­hæð en Hösk­uldur þáði við starfs­lok.

Stöðu­gildi sam­stæð­unnar voru 904 í lok árs og fækk­aði um 45 frá árinu á undan, en bank­inn rekur fækk­un­ina til útvist­unar á seðla­veri, í sam­vinnu við hina stóru við­skipta­bank­ana, og „hag­ræð­ingar í staf­rænni veg­ferð bank­ans“. Hafði stöðu­gildum fækkað enn frekar í 880 um mitt ár 2019, alls um 69 frá árs­lokum 2017.

Benedikt Gíslason, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, tók við starf­inu í júlí. Í kjöl­farið var til­kynnt um að hagn­aður bank­ans á öðrum árs­fjórðuni hefði dreg­ist saman um millj­arð frá sama tíma­bili 2018. Arion banki var við­skipta­banki WOW air og hefur bank­inn lýst 2,4 millj­arða króna kröfu í þrotabú flug­fé­lags­ins.

Hösk­uldur starf­aði hjá Arion banka í níu ár, en var þar á undan hjá Eim­skipa­fé­lagi Íslands. „Bank­inn er fjár­hags­lega sterkur með traustan grunn­rekstur og vel í stakk búinn fyrir það sem fram­tíðin ber í skauti sér. Ég tel þetta vera rétta tím­ann til að fela öðrum að taka við kefl­in­u,“ sagði Hösk­uldur í til­kynn­ingu til Kaup­hallar við brott­hvarfið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár