Mynd: Heiða Helgadóttir

Verst refsingu fyrir sannleikann

Síð­ast­liðið haust sett­ist Kristinn Hrafns­son í rit­stjóra­stól WikiLeaks, eftir að hafa helgað sam­tök­unum stærstan hluta síð­ustu tíu ára. Kristinn ræddi við Stundina um Wikileaks-ævin­týrið, and­vara­leysi blaða­manna og almenn­ings gagn­vart hættu sem að þeim steðjar og sökn­uð­inn gagn­vart feg­ursta stað á jarð­ríki, Snæfjalla­strönd, þar sem hann dreymir um að verja meiri tíma þegar fram líða stundir.

Hvernig vildi það til að íslenskur rann­sókn­ar­blaða­maður gerð­ist rit­stjóri Wikileaks, heims­þekktra en umdeildra sam­taka sem hafa hrist upp í hverju valda­kerf­inu á fætur öðru og afhjúpað spill­ingu og lög­leysu með birt­ingu leynigagna? Til þess að útskýra það er nauð­syn­legt að fara rúm­lega tíu ár aftur í tím­ann, aftur til jan­úar 2009, þegar bús­á­halda­bylt­ingin stóð sem hæst og Kristinn Hrafns­son var sjón­varps­frétta­maður á Stöð 2. Þar starf­aði hann við frétta­skýr­inga­þátt­inn Kompás og hafði um nokk­urt skeið verið að vinna í frétt um Robert Tchenguiz, breska fjár­fest­inn sem hafði verið gríð­ar­lega stór lán­tak­andi í íslensku banka­kerfi á árunum fyrir hrun. Upp­lýs­ing­arnar sem Kristinn hafði undir höndum sýndu að flestar fjár­fest­ingar Tchenguiz fóru í gegnum aflands­fé­lög og höfðu lítil sem engin veð á bak við sig. Til stóð að flytja þátt­inn á mánu­dags­kvöldi og því hafði Kristinn sam­band við frétta­stjóra og óskaði eftir aðstoð frétta­stof­unnar við að kynna það sem í vændum var. …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár