Eyþór seldi hlut sinn í virkjunarfélagi sem Orkuveitan vinnur með og settist í stjórn OR

Eyþór Arnalds, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, keypti virkj­un­ar­kost af Orku­veitu Reykja­víkur árið 2011 í gegnum Íslenska vatns­orku ehf. Eyþór sett­ist í stjórn Orku­veit­unnar í vik­unni og svar­aði því til á borg­ar­stjórn­ar­fundi að hann tengd­ist Íslenskri vatns­orku ekki lengur.

Seldi á 33 milljónir
Seldi á 33 millj­ónir Eyþór Arnalds seg­ist hafa selt hlut sinn í Íslenskri vatns­orku ehf. fyrir 33 millj­ónir króna í fyrra. Félagið vinnur að þróun á virkj­un­ar­kosti við Lang­jökul ásamt Orku­veitu Reykja­víkur. Mynd: Framboð Eyþórs Arnalds

Eyþór Arnalds, borg­ar­full­trúi og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík, seldi hluta­bréf sem hann átti í orku­fyr­ir­tæk­inu Íslenskri vatns­orku ehf. til eign­ar­halds­fé­lags sem er í eigu tann­læknis sem er eig­in­kona end­ur­skoð­anda fyr­ir­tæk­is­ins, Gunnars Viðars Björns­sonar. Þetta gerð­ist árið 2018. 

Íslensk vatns­orka er meiri­hluta­eig­andi í fyr­ir­tæk­inu Haga­vatns­virkjun ehf. á móti Orku­veitu Reykja­víkur (OR). Íslensk vatns­orka á 90 pró­senta hlut í Haga­vatns­virkjun, sem er félag utan um mögu­legan virkj­un­ar­kost við Lang­jökul sem ber sama nafn, á móti 10 pró­senta hlut Orku­veitu Reykja­víkur. Eyþór sett­ist í stjórn Orku­veitu Reykja­víkur sem kjör­inn borg­ar­full­trúi nú í vik­unni.

Eyþór var stærsti hlut­hafi Íslenskrar vatns­orku í árs­lok 2017 í gegnum félag sitt, Ramses ehf. Ramses er hins vegar ekki lengur skráð sem hlut­hafi í Íslenskri vatns­orku ehf. heldur er félagið JE Eign­ar­halds­fé­lag ehf., sem er í jafnri eigu tann­lækn­is­ins Maríu Malmquist Elí­as­dóttur og Leylu Evu Gharavi, orðið eig­andi að 60 pró­senta hluta­fjár í félag­inu í gegnum önnur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár