Eigendavaldi ítrekað beitt á Fréttablaðinu

Ritstjórar og blaðamenn hafa hrakist í burtu vegna afskipta eigenda frétta­blaðsins, Jóns Ásgeirs Jóhann­es­sonar og Ingibjargar Pálma­dóttur. Ýmsum aðferðum beitt til að hola hið ritstjórnar­lega sjálf­stæði að innan.

Eigendur hafa afskipti
Eigendur hafa afskipti Blaða­menn Frétta­blaðs­ins hafa greint frá því að ítrekað hafi verið reynt að hafa afskipti af frétta­skrifum þeirra. Mynd: Pressphotos

Þótt Helgi Magnússon, sem á dögunum keypti helmings­hlut í Frétta­blaðinu, neiti því að hann hyggist hafa afskipti af ritstjórnar­stefnu Frétta­blaðsins og segist ekki munu beita eigenda­valdi sínu til að hafa áhrif á umfjöllunar­efni blaðsins, þá hefur eigenda­valdi ítrekað verið beitt til að hafa áhrif á ritstjórnarlegt sjálf­stæði Frétta­blaðsins í gegnum tíðina. Um það hafa fyrr­verandi blaðamenn og ritstjórar vitnað.

Árið 2002 eignaðist Jón Ásgeir Jóhannesson Frétta­blaðið í gegnum félag sitt Baug, án þess að greint væri frá eignar­haldinu fyrr en árið eftir. Blaðamenn hafa greint frá því að þá þegar hafi Jón Ásgeir hafið afskipti af frétta­flutningi sem honum hugnaðist ekki. Þannig greindi Sigurður Hólm Gunnarsson, sem vann sem blaða­maður á Vísi, frá því að honum hefði verið fyrir­skipað að taka úr birtingu frétt um ásakanir Jóns Geralds Sullenbergers á hendur Jóni Ásgeiri. Hann hafi neitað því en engu að síður hefði fréttin verið fjarlægð. Fleiri sögur af …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár