Stýran og Kötl­urnar Lilja Dögg segir að hjá Kötlunum sé mikið lagt uppúr því að búa til kröft­uga og lit­ríkan hljóð­heim með því að nýta styrk og dýpt radd­ar­innar. Mynd: Heiða Helgadóttir

Allt er gott og ekkert skiptir máli

Það er hin full­komna núvit­und að gleyma sér í söng. Þetta segir Lilja Dögg Gunn­ars­dóttir, önnur af tveimur kór­stýrum kvenna­kórs­ins Kötlu. Í kórnum eru sex­tíu konur sem taka sér pláss, ham­fletta sig og rífa jafn­vel úr sér hjartað – allt fyrir söng­inn, sam­ver­una og sam­stöð­una.

Djúp þörf og löngun til að koma saman og syngja varð kveikjan að stofnun kvenna­kórs­ins Kötlu fyrir um sjö árum síðan. „Þetta var vorið 2012. Hug­myndin kom upp­haf­lega frá nokkrum stelpum sem höfðu verið saman í kór í mennta­skóla. Þær lang­aði að halda áfram að syngja og höfðu sam­band við Hildig­unni [Ein­ars­dóttur] og fengu hana í lið með sér. Hún hafði svo sam­band við mig og spurði hvort ég vildi ekki koma með henni út í þetta ævin­týri. Ég lét slag standa. Við vorum strax sam­mála um að við ætl­uðum að gera eitt­hvað stór­kost­legt og öðru­vísi með þennan kór,“ segir Lilja Dögg Gunn­ars­dóttir. Saman hafa þær síðan stýrt Kötlunum og fengið mikið hrós fyrir sér­staka nálgun sína. Þær hafa frá upp­hafi gert sínar eigin útsetn­ingar fyrir kór­inn, sem hefur stækkað hratt og örugg­lega. Það mynd­að­ist fljótt sér­stök stemn­ing innan hóps­ins og varð fljótt eft­ir­sókn­ar­vert að slást í för með Kötlunum. Sem stendur eru um sex­tíu konur í kórnum og fleiri bíða í röðum eftir því að fá að vera með. Síðast þegar opnað var fyrir umsóknir sóttu fimm­tíu konur um, haldið var inn­töku­próf og aðeins tíu komust að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár