„Er eðlilegt að útrýma fötluðu fólki?“

Öryrkja­banda­lag Íslands lítur á nýju þung­un­ar­rofslögin sem „aðför að rétti fatl­aðs fólks til lífs“ og hefði frekar viljað þrengja rétt­inn til að rjúfa þungun vegna fóst­ur­galla.

„Er eðlilegt að útrýma fötluðu fólki?“

Þuríður Harpa Sig­urð­ar­dóttir, for­maður Öryrkja­banda­lags Íslands, telur of langt gengið að heim­ila þung­un­ar­rof skil­yrð­is­laust fram til loka 22. viku og telur að þung­un­ar­rof á því stigi með­göngu ætti ein­ungis að fram­kvæma ef lífi þung­aðrar konu er stefnt í hættu eða fóstur telst ekki líf­væn­legt. 

„Við ættum að stuðla að fjöl­breyti­leika í okkar sam­fé­lagi í stað þess að reka mann­kyn­bóta­stefnu,“ segir hún í sam­tali við Stundina. 

Í gær sam­þykkti Alþingi ný heild­ar­lög um þung­un­ar­rof sem veita konum rétt til að rjúfa þungun fram að lokum 22. viku þung­unar óháð því hvaða ástæður liggja að baki.

Félag fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna, Ljóðs­mæðra­fé­lag Íslands og kvenna­hreyf­ingar hafa stutt frum­varpið en Öryrkja­banda­lag Íslands lagð­ist ein­dregið gegn því. „Þær til­lögur að rýmka heim­ildir til þung­un­ar­rofs fram yfir 20 vikna fóst­ur­skimun eru aug­ljós­lega ætl­aðar til þess að hægt sé að bregð­ast við þeim frá­vikum sem þar kynnu að grein­ast,“ segir í umsögn ÖBÍ. Um sé að ræða „aðför að rétti fatl­aðs fólks til lífs“.

Stundin hafði sam­band við Þuríði Hörpu í gær, áður en greidd voru atkvæði um málið á Alþingi, og ræddi við hana um afstöðu banda­lags­ins.

„Samkvæmt frum­varp­inu mun konan geti tekið þessa þung­bæru ákvörðun að rjúfa þungun eftir 16. viku án þess að ræða það við einn eða neinn eða gefa upp nokkra ástæðu. Það þykir mér mjög slæmt,“ segir Þuríður. „Ef konur er í erf­iðri félags­legri stöðu, svo sem í ofbeld­is­sam­bandi eða með fíkni­sjúk­dóm, þá hljóta heil­brigð­is­yf­ir­völd og sam­fé­lagið að þurfa að stíga inn og aðstoða þær.“

Hún segir að að innan heil­brigð­is­kerf­is­ins séu dæmi um að þröngur hópur sér­fræð­inga veiti „mjög ein­hliða ráð­gjöf þar sem fólki er bein­línis ráð­lagt að fara í fóst­ur­eyð­ingu ef grunur er um að það sé ein­hver fötlun“. ÖBÍ sé mót­fallið því og vilji að ráð­gjöfin og fræðslan sé þver­fag­leg og marg­hliða til að vænt­an­legir for­eldrar geti tekið upp­lýsta ákvörðun um fram­haldið.

„Ætlum við næst að fara að útrýma
rauð­hærðum eða fólki með ADHD?“

„Það er ekki endir alheims að barn fæð­ist fatlað og það er mjög sárt fyrir marga af mínum vinum að hlusta á umræðu þar sem er til dæmis talað um að það eigi að rjúfa þungun vegna þess að fóstur sé með klof­inn hrygg. Fólk sem er full­gilt í sam­fé­lag­inu í dag. Ætlum við næst að fara að útrýma rauð­hærðum eða fólki með ADHD? Hvað er fötlun og hvað ekki? Er eðli­legt að við útrýmum fötl­uðu fólki, er það þangað sem sam­fé­lagið vill fara?“

Samkvæmt fyrri lögum og laga­fram­kvæmd hefur þungun verið rofin fram að lokum 16. viku þegar félags­legar ástæður liggja að baki en allt fram að lokum 22. viku „séu miklar líkur á van­sköpun, erfða­göllum eða sköddun fóst­urs“ eins og það er orðað í lög­unum. Með hinum nýju lögum munu 22 vikna mörkin gilda óháð því hvaða ástæður liggja að baki beiðni um þung­un­ar­rof. 

Þuríður Harpa seg­ist mót­fallin því fyr­ir­komu­lagi sem hefur verið við lýði fram að þessu og telur ekki boð­legt að rjúfa megi þungun á 20. til 22. viku ef ástæður eru aðrar en þær að lífi kon­unnar sé stefnt í hættu eða fóstur telj­ist ekki líf­væn­legt. 

Á und­an­förnum árum hafa á bil­inu 7 til 10 konur á ári rofið þungun eftir að gallar greindust við 20 vikna fóst­ur­grein­ingu. Aðspurð hvort hún vilji í raun þrengja rétt kvenna til þung­un­ar­rofs í slíkum til­vikum spyr Þuríður á móti: „Já, rétt­inn til þess að rjúfa þungun án þess að gefa upp raun­veru­lega ástæðu. Ef ástæðan er nið­ur­staða fóst­ur­grein­ingar þurfum við að velta fyrir okkur sið­ferði­legum spurn­ingum og hvernig fram­tíð­ar­sam­fé­lag okkar verður.“

Hún segir þörf á fræðslu og vit­und­ar­vakn­ingu um virð­ing­una fyrir lífi og mann­helgi fatl­aðra. „Við sem sam­fé­lag hljótum að vilja víð­sýni í stað þess að útrýma ákveðnum hópum sem telj­ast ekki „æski­legir“,“ segir Þuríður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Þungunarrof

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár