Dæmdar fyrir að valda truflun á flugi með því að standa upp fyrir hælisleitanda

Tvær konur voru dæmdar í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi til tveggja ára fyrir að hafa valdið truflun með því að standa upp í flug­vél og mót­mæla brott­vísun vinar síns úr landi. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur komst að þeirri nið­ur­stöðu að aðgerð þeirra hefði valdið „veru­legri truflun“ og „veru­legum óþæg­indum“.

Dæmdar fyrir að valda truflun á flugi með því að standa upp fyrir hælisleitanda

Tvær konur sem stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla ólög­legri brott­vikn­ingu hæl­is­leit­anda hafa verið dæmdar í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi til tveggja ára fyrir að valda „veru­legri truflun“ og „veru­legum óþæg­indum“ með aðgerð sinni. Dómurinn var kveð­inn upp í hér­aðs­dómi Reykja­víkur fyrr í dag en honum verður að öllum lík­indum áfrýjað.

Þær Jórunn Edda Helga­dóttir og Ragn­heiður Freyja Krist­ín­ar­dóttir voru meðal ann­ars fundnar sekar um brot gegn 176. grein almennra hegn­ing­ar­laga sem kveður á um refs­ingu við því að valda veru­legri truflun á rekstri sam­göngu­tækja. Þær voru hins­vegar sýkn­aðar af alvar­leg­asta ákæru­at­rið­inu, en dóm­ur­inn komst að því að þær hefðu ekki raskað öryggi loft­fars með aðgerð sinni, en við því liggur allt að sex ára fang­elsi.

Þrátt fyrir að dóm­ur­inn hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að aðgerðin hafi ekki valdið mik­illi seinkun á flug­inu, telur hann ljóst að „veru­leg óþæg­indi“ hafi hlot­ist af henni, auk þess sem far­þegar og áhöfn hafi verið „slegin óhug.“ Þá voru Ragn­heiður og Jórunn jafn­framt fundnar sekar um brot á 106. grein almennra hegn­ing­ar­laga, með því að hafa reynt að koma í veg fyrir að lög­reglu­maður vinni skyldu­starf, auk þess sem þær voru fundnar sekar um að hafa brotið gegn 42. grein laga um loft­ferðir með þív að hafa ekki hlýtt flug­freyjum „um góða hegðun og reglu í loft­fari“.

Óveruleg truflun

„Við gerum sem sagt ráð fyrir því að áfrýja þess­ari nið­ur­stöðu,“ sagði Jórunn Edda í sam­tali við Stundina eftir að dómur hafi fallið. Þá bætti hún við að þær Ragn­heiður ættu eftir að kynna sér dóm­inn í þaula og að þær myndu fara vand­lega yfir málið með lög­mönnum sínum áður en end­an­leg ákvörðun um áfrýjun yrði tekin.

Jórunn bætti því við að fólk hafi ekki ein­ungis rétt á því að mót­mæla heldur beri því hrein­lega skylda til þess að standa vörð um líf ann­arra og veru­lega hags­muni þeirra. „Miðað við þá hags­muni sem í húfi voru fyrir mann­inn sem var verið að flytja í lífs­hættu­legar aðstæður þá hlýtur þetta að telj­ast mjög óveru­leg truflun. Ef það að standa vörð um líf manns og koma í veg fyrir að hann verði sendur í lífs­hættu má ekki valda öðrum örlitlum óþæg­indum sýnir það bara enn frekar fram á hvaða áherslur eru í fyr­ir­rúmi í kerf­inu.“

Sem fyrr segir þá voru þær Jórunn og Ragn­heiður dæmdar í þriggja mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi. Þá var þeim einnig gert að greiða málsvarn­ar­laun verj­enda sinna, alls á þriðju milljón króna.

„Ef það að standa vörð um líf manns og koma í veg fyrir að hann verði sendur í lífs­hættu má ekki valda öðrum örlitlum óþæg­indum sýnir það bara enn frekar fram á hvaða áherslur eru í fyr­ir­rúmi í kerf­inu“

Stóðu upp fyrir vin sinn

Það var að morgni dags þann 26. maí 2016 sem þær Jórunn Edda og Ragn­heiður Freyja stóðu upp í flug­vél Icelandair til að mót­mæla brott­vísun hæl­is­leit­and­ans Eze Okafor sem hafði verið hand­tek­inn og færður með lög­reglu­valdi í flug­vél­ina þar sem vísa átti honum til Sví­þjóðar.

Þá þegar lá fyrir að sænsk yfir­völd myndu ekki taka mál hans fyrir heldur senda hann aftur til heima­lands­ins Nígeríu en Eze hefur greint frá því að hann hafi flúið þaðan í kjöl­far árása Boko Haram liða, sem veittu honum stungu­sár og myrtu bróður hans.

Kæru­nefnd útlend­inga­mála var þá þegar búin að úrskurða um að að frest­ur­inn til þess að vísa Eze úr landi á grund­velli dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar væri útrunn­inn en samt sem áður ákvað Útlend­inga­stofnun að vísa honum úr landi á þessum grunni.

Stóðu þær Ragn­heiður og Jórunn upp áður en vélin tók á loft og báðu aðra flug­far­þega um að sýna hæl­is­leit­and­anum sam­stöðu en flug­stjóri flug­vél­ar­innar neit­aði að taka á loft fyrr en allir far­þegar höfðu sest niður.

Stundin ræddi við þær Jórunni Eddu og Ragn­heiði Freyju í októ­ber síð­ast­lið­inn „Við vorum báðar veru­lega hræddar um öryggi hans svo við gripum til þessa örþrifa­ráðs. Við töldum mögu­legar tafir á flugi um ein­hverjar mín­útur ekki vera neitt neitt í sam­an­burði við manns­lífið sem væri í húfi, nú eða öryggi mann­eskj­unnar – vinar okkar,“ sagði Jórunn Edda þá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár