Óvinnufær og full vantrausts eftir réttaróvissuna

Kona, sem á börn með manni sem hefur verið dæmdur fyrir kynferðis­brot gegn þroska­skertri stúlku, hefur verið óvinnufær í tvær vikur, eða allt frá því að Lands­réttur frestaði öllum málum sem voru þar á dagskrá. Þar átti að taka málið fyrir daginn eftir að dómur Mann­réttinda­dómstóls Evrópu setti milli­dómstigið í uppnám, með ófyrirséðum afleiðingum fyrir brotaþola og aðstand­endur þeirra.

Landsréttur
Lands­réttur Mikil réttaró­vissa skap­að­ist þegar Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væri brot á mann­rétt­indum og rétt­látri máls­með­ferð að borg­arar væru dæmdir af þeim dóm­urum sem voru rangt skip­aðir. Mynd: Dómsmálaráðuneytið

Þeirra á meðal er konan sem hér talar. Hún er á fimmtugsaldri, þriggja barna móðir, sem bjó með þessum manni þegar hann braut kynferðis­lega á ungri stúlku. Stúlkan er þroska­skert og hafði verið inni á heimili þeirra í þrjú ár frá sextán ára aldri, en í gegnum félagsmála­yfirvöld hafði fjöl­skyldan tekið að sér að veita stúlkunni stuðning. 

„Þegar brotin komust upp var hún komin úr vistun hjá okkur og orðin sjálf­stæðari. Hún kom enn reglulega í heimsókn, var með okkur og borðaði með okkur. Mér skilst að hann hafi sagt við hana að við værum að hugsa um að skilja og reynt að selja henni að þetta væri þá í lagi. Hún þorði ekki að segja mér frá þessu því hún var svo hrædd um að hún væri ástæðan fyrir því að við skildum. En það var aldrei þannig.“ 

„Þegar brotin komust upp var hún komin úr …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár