Eldar hollan mat sem börnin elska

Heil­næmar og hollar mat­ar­venjur barna standa nærri hjarta Magneu Guðnýjar Ferdin­ands­dóttur, sem fyrir fjórtán árum fann ástríðu sinni far­veg í starfi þegar hún réð sig sem mat­ráð á Leik­skól­anum Reyn­is­holti. Þar töfrar hún fram hina ýmsu græn­met­is­rétti og hreina fæðu sem falla vel í kramið hjá börn­unum. Hún hefur helgað sig nær­ingu ungra barna og segir aldrei of seint að breyta mat­ar­venjum barna til góðs.

Eldar hollan mat sem börnin elska

Þegar börnum er kynnt holl­ustu­fæði sem þau hafa ekki fengið áður er algjört lyk­il­at­riði að mat­ur­inn sé fal­lega fram­settur, segir Magnea Guðný. Þá hjálpar einnig að hafa græn­metið vel maukað til að byrja með þegar um ung börn er að ræða. „Oftast mun barnið ekki vilja smakka mat­inn í fyrstu en það má ekki gef­ast upp heldur doka við og bjóða barn­inu mat­inn aftur síðar sem þá er orð­inn kunn­ug­legur. Þetta tekur oft­ast ekki nema nokkur skipti og þá er barnið farið að borða mat­inn. Það dugar ekk­ert annað en stað­festa og hvatn­ing.“

Matarástin hríslast niður fjölskyldutréð

„Ég hef alltaf notið þess að mat­reiða hollan mat úr fersku og góðu hrá­efni, það er mér  í blóð borið í beinan kven­legg ef svo má segja. Við erum þrjár kyn­slóðir hús­stjórn­ar­skóla­geng­inna kvenna með ástríðu fyrir mat­ar­gerð. Amma mín var afbragðskokkur og móðir mín eld­aði hollan mat af kost­gæfni. Viðhorf þeirra og nálgun …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár