Ósáttir starfsmenn hætta hjá hjálpartækjaverslun

Fimm starfs­menn af sjö sem vinna í afgreiðslu í kyn­lífstækja­versl­un­inni Blush.is sögðu upp störfum fyrr í mán­uð­inum vegna sam­skipta­erf­ið­leika og kjara­mála. Eigandi versl­un­ar­innar, Gerður Hulda Arin­bjarn­ar­dóttir, við­ur­kennir að hafa borgað svört laun og seg­ist gera mann­leg mis­tök.

Ósáttir starfsmenn hætta hjá hjálpartækjaverslun
Gerður Huld Arin­bjarn­ar­dóttir, eig­andi Blush.is. Mynd: MBL / Eggert Jóhannesson

Fimm starfs­menn af sjö sem vinna í afgreiðslu í kyn­lífstækja­versl­un­inni Blush.is sögðu upp störfum í febr­ú­ar­mán­uði eftir starfs­manna­fund hjá fyr­ir­tæk­inu. Versl­unin flutti nýverið í stærra hús­næði og var greint frá því í Frétta­blað­inu að þar væri á ferð­inni „glæsi­leg­asta kyn­lífstækja­versl­unin sem opnuð hefur verið á Íslandi“. Fyr­ir­tækið hefur hagn­ast vel síð­ustu tvö ár, en engu að síður kvartar starfs­fólk undan kjara­málum.

Þá lýsir starfs­fólk, sem Stundin ræddi við, því að slæm við­brögð yfir­manna við umleit­unum vegna kjara­mála hefði leitt af sér slæmt and­rúms­loft sem leitt hefði til upp­sagna þeirra. Eigandi versl­un­ar­innar, Gerður Huld Arin­bjarn­ar­dóttir, segir starfs­fólkið óþarf­lega reitt og kveðst hún hafa beðist afsök­unar.

„Í raun og veru hefði verið hægt að leita lausnar hvað varðar kjara­mál, en þar sem allir starfs­menn eru gríð­ar­lega óánægðir með fram­komu yfir­manna og þá sér­stak­lega Gerðar, ákváðu allir að segja upp störfum í lok starfs­manna­fundar,“ segir einn við­mæl­enda.

Ein af þeim …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu