Félagsbústaðir seldu starfsmanni sínum fimm bíla

Spurt var um sölu bif­reiða Félags­bú­staða til tengdra aðila í borg­ar­ráði. Fram­kvæmda­stjóri segir að aug­lýs­ingar hafi engan árangur borið, en fram­vegis verði bílar seldir á almennum mark­aði.

Félagsbústaðir seldu starfsmanni sínum fimm bíla
Seldu fimm bíla til starfs­manns Félags­bú­staðir bjugg­ust við að bíl­arnir yrðu þungir í sölu og seldu þá því inn­an­húss.

Félags­bú­staðir seldu starfs­manni sínum fimm bíla og dóttur ann­ars starfs­manns einn bíl enn fyrir sam­tals 780 þús­und krónur í sept­em­ber 2018. Fram­kvæmda­stjóri segir að aug­lýs­ingar til að selja bíl­ana hafi ekki borið árangur, en fram­vegis verði bílar seldir á almennum mark­aði.

Áheyrn­ar­full­trúar Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins í borg­ar­ráði lögðu inn fyr­ir­spurn vegna sölu bíl­anna til starfs­manns­ins. „Um var að ræða 6 smá­bíla, sem voru 11 til 13 ára gamlir og eknir frá 108 þús­und til tæp­lega 160 þús­und kíló­metra og flestir í döpru ástandi,“ segir í svari Sigrúnar Árna­dóttur, fram­kvæmda­stjóra Félags­bú­staða. „Að mati bíla­sala sem Félags­bú­staðir leit­uðu til hefðu þessir bílar verið þungir í sölu vegna ald­urs og ástands og taldi hann að fá mætti í hæsta lagi um 150 þús. kr. stað­greitt fyrir hvern Hondu bíl en eitt­hvað meira fyrir Toyotuna. Sölulaun fyrir hvern bíl hefðu verið 63.500 krónur.“

Segir í svar­inu að aug­lýs­ingar í Frétta­blað­inu og á vef Félags­bú­staða hafi ekki borið árangur. Starfs­mönnum hafi því verið boðið að gera til­boð í fimm Honda Jazz bíla og einn Toyota Yaris. Keypti einn starfs­maður fimm bíla og dóttir ann­ars einn. „Sam­an­lagt feng­ust því 780 þús­und krónur fyrir bíl­ana með þessu móti sem er svipað eða heldur meira en vænta mátti sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem fyrir lágu og að teknu til­liti til sölu­launa. Það er hins vegar með öllu óvíst hvort eða hvernig hefði tek­ist að selja bíl­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár