Vann endanlega dómsmál eftir ólögmæta uppsögn

Áfrýjun til Lands­réttar var dregin til baka í máli Gabrielu Motolu. Hún stefndi RGB mynd­vinnslu, syst­ur­fé­lagi Pegasus kvik­mynda­gerðar, fyrir að virða ekki þriggja mán­aða starfs­loka­samn­ing.

Vann endanlega dómsmál eftir ólögmæta uppsögn

RGB mynd­vinnsla hefur dregið til baka áfrýjun sína í máli Gabrielu Motolu. Gabriela stefndi RGB, syst­ur­fé­lagi kvik­mynda­fram­leið­and­ans Pegasus, eftir að starfs­loka­samn­ingi hennar var rift ein­hliða af aðal­eig­anda RGB og Pegasus. RGB var dæmt í fyrra til að greiða henni það sem eftir var af starfs­loka­samn­ingi hennar, eða 974.140 krónur með vöxtum auk máls­kostn­aðar.

RGB áfrýj­aði dóm­inum 25. októ­ber síð­ast­lið­inn, sem var þá á síð­ustu stundu.

Héraðsdómur féllst ekki á útskýringar RGB

Málsvörn fyr­ir­tæk­is­ins í hér­aðs­dómi byggð­ist á því að Gabriela hefði ekki skilað nógu mik­illi vinnu af sér og að starfs­loka­samn­ingur hennar, sem var sam­þykktur raf­rænt, hafi ekki verið gildur. Eggert Bald­vins­son, fram­kvæmda­stjóri RGB, sagði að hann hefði mis­skilið tölvu­póst­inn um starfs­loka­samn­ing­inn sem hann sam­þykkti raf­rænt.

Hann hélt því fram að Gabriela hefði aðeins verið verk­taki, þrátt fyrir að gerð hafi verið krafa á hana um að mæta ákveðið oft í vinnu áður …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár