Mynd: Davíð Þór Guðlaugsson

Vantar fleiri tól til að berjast gegn launaþjófnaði

Tveir full­trúar sem sinna vinnu­staða­eft­ir­liti ASÍ á höf­uð­borg­ar­svæð­inu segja að erlent starfs­fólk eigi sér­stak­lega undir högg að sækja á núver­andi vinnu­mark­aði. Þeir ræða mik­il­vægi þess að stöðva kenni­tölu­flakk, setja þak á frá­drátt­ar­liði á launa­seðlum og að finna leiðir til að fara beint í rekstr­ar­að­ila sem stunda launa­þjófnað.

„Hann sagði við mig að ef ég kæmi aftur á vinnu­stað­inn þá yrði ég bara tek­inn og lam­inn. Hvað á ég að gera? Ég þarf samt að vinna.“

Svona lýsir Ingólfur Björgvin Jónsson, starfs­maður á kjara­mála­sviði Eflingar, frá­sögn erlends verka­fólks af valda­níðslu sem honum finnst allt of algeng. Adam Kári Helgason, eft­ir­lits­full­trúi Raf­iðn­að­ar­sam­bands Íslands, tekur í sama streng. „Það hafa verið mörg dæmi um að félags­menn komi til okkar og segja að eig­and­inn eða yfir­mað­ur­inn ætli að sparka sér út og senda aftur heim án þess að fá van­goldin laun borguð. Sumir atvinnu­rek­endur, en alls ekki allir, mála skratt­ann á vegg­inn.“

Þeir Ingólfur og Adam hafa víð­tæka reynslu af vinnu­staða­eft­ir­liti á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þá sér­stak­lega í bygg­ing­ar­geir­anum. Þrátt fyrir að lang­flest fyr­ir­tæki standi sig og komi vel …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Starfsfólk launalaust fjórum mánuðum eftir gjaldþrot Sternu
ÚttektRéttindabrot á vinnumarkaði

Starfs­fólk launa­laust fjórum mán­uðum eftir gjald­þrot Sternu

Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Sterna var sett í gjald­þrot í mars og starfs­fólk­inu sagt upp, en síðan var gjald­þrotið dregið til baka. Fjórum mán­uðum síðar hafa fjöl­margir ekki enn fengið laun eða upp­sagn­ar­frest borg­aðan frá fyr­ir­tæk­inu. Starf­andi fram­kvæmda­stjóri neitar því ekki að fyr­ir­tækið sé hugs­an­lega að skipta um kenni­tölu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár