Lítil von að samningar náist fyrir áramót

Fundað er alla daga frá morgni til kvölds en aðilar vinnu­mark­að­ar­ins telja ólík­legt að gerð kjara­samn­inga ljúki á þeim níu virku dögum sem eru til ára­móta.

Lítil von að samningar náist fyrir áramót

Aðilar vinnu­mark­að­ar­ins funda alla daga frá morgni til kvölds en litlar líkur virð­ast vera á því að gerð kjara­samn­inga klárist fyrir ára­mót. Samn­ingar á hinum almenna vinnu­mark­aði renna út í lok árs. Morg­un­blaðið greinir frá.

„Við erum búin að vera að funda nokkuð stíft síð­ustu vik­urnar og munum funda næstu tvær vikur fram að jólum en mér finnst ólík­legt að við náum fundi milli jóla og nýárs,“ segir Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son, for­maður Raf­iðn­að­ar­sam­bands­ins. „Við munum nota tím­ann ef við erum að tala um eitt­hvað sem skiptir máli en mér sýn­ist aug­ljóst að við séum varla að fara að ná samn­ingum fyrir ára­mót miðað við hvernig staðan er.“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, tekur í sama streng og segir ólík­legt að það tak­ist að ljúka samn­ingum á þeim níu virku dögum sem eru til ára­móta. „Auðvitað eru menn að reyna að vera lausn­a­mið­aðir en þetta er bara í vinnslu og erfitt að tjá sig um stöð­una að öðru leyti en því að það er ekk­ert farið að sjá til lands í neinum af þess um stóru málum en þau eru þó öll í vinnslu,“ segir hann.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, seg­ist ekki telja ólík­legt að stjórn­völd stígi inn til að greiða fyrir gerð samn­inga á loka­metrum við­ræðna. Nú standi yfir að meta vinnu­stundir og yfir­vinnu­tíma fyrir hvert og eitt stétt­ar­fé­lag og meta kostnað og áhrif af ein­staka breyt­ingum.

„Ég hef ekki farið í graf­götur með það að stóra tæki­færið í þessum kjara­samn­ingum er að draga úr þeim mikla yfir­vinnu­kúltúr sem er á Íslandi og það skapar þá grunn fyrir hækkun dag­vinnu­launa,“ segir Halldór. „Þar erum við stödd í vinn­unni eins og sakir standa.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Verkalýðsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár