Xi Jinping Faðir hans var settur í þræla­búðir Maós. Nú er hann form­lega ein­ráður í Kína. Mynd: Shutterstock

Valdamesti maður heims lætur ritskoða Bangsímon

Komm­ún­ismi er ekki lengur hin eina sanna hug­mynda­fræði kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins og Maóismi ekki heldur. Á flokks­þing­inu í fyrra var form­lega sam­þykkt að gera hug­mynda­fræði Xi Jinping að leið­ar­ljósi flokks­ins, sem telur 90 millj­ónir flokks­manna og stýrir stærsta ríki heims með 1.400 millj­ónir þegna.

Einn maður ber nú beina ábyrgð á vel­ferð eins fimmta allra jarð­ar­búa. Völd Xi Jinping, sem for­seti og nán­ast ein­ráður í Kína, eru slík að hann hefur áhrif á dag­legt líf fólks um allan heim með ákvörð­unum sínum. Það stendur berum orðum í stjórn­ar­skrá kín­verska komm­ún­ista­flokks­ins, eftir form­lega sam­þykkt á flokks­þingi í fyrra, að þanka­gangur Xi Jinping sé hin eina rétta stefna fyrir Kínverja og vænt­an­lega allt mann­kyn.

Það ná fáir leið­togar svo langt að þeirra sé sér­stak­lega getið í stjórn­ar­skrá með þessum hætti, hvað þá í stærsta ríki heims þar sem gengið hefur á ýmsu í storma­sömum stjórn­málum og valda­bar­áttu. Xi hefur vart grunað að hann næði svo langt á yngri árum; þegar faðir hans var í fanga­búðum og fjöl­skyldan var látin strita á hrís­grjóna­akri í nafni Maó Zedong og hans túlkun á komm­ún­isma.

Fimm ára gam­all Xi Jinping (t.v.) ásamt föður sínum, Xi …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár