Þéna 714-föld laun fiskvinnslustarfsmanns en greiða lægra hlutfall í skatt

Arðgreiðslur til eigenda stóru útgerðar­fyrir­tækjanna eru miklu hærri en veiði­gjöldin sem fyrir­tækin greiða til ríkis­sjóðs.

Fjórir milljarðar
Fjórir millj­arðar Heild­ar­árs­tekjur fólks­ins sem átti stærstan hlut í tveimur kvóta­hæstu útgerð­ar­fyr­ir­tækj­unum voru um fjórir millj­arðar í fyrra.

Þeir fjórir einstaklingar sem áttu stærstan hlut í Samherja og HB Granda, kvóta­hæstu útgerðar­fyrirtækjum landsins, í fyrra þénuðu samtals tæpa fjóra milljarða í heildar­árstekjur. Fjárhæðin samsvarar 714-földum tekjum dæmigerðs fiskvinnslu­starfsmanns samkvæmt launa­tölum frá Eflingu stéttar­félagi. 

Kristján Loftsson þénaði 1.423 milljónir króna í fyrra þegar hann var stjórnar­formaður og einn af aðal­eigendum HB Granda. Fiskvinnslu­starfsmaður hjá fyrir­tækinu væri 254 ár að vinna sér inn slíkar tekjur. 

Þorsteinn Már Baldvinsson, annar af aðal­eigendum Samherja, var með 476 milljóna tekjur á sama ári, eða sem nemur árstekjum 85 starfs­manna við fisk­vinnslu hjá fyrir­tækinu. 

For­sendur, skýr­ingar og heim­ildir: Sam­an­burð­ur­inn mið­ast við árið 2017 eftir því sem unnt er. Tekju­upp­lýs­ingar byggja á álagn­ing­ar­skrám rík­is­skatt­stjóra. Upp­lýs­ingar um hagnað og aukn­ingu eig­in­fjár eru úr árs­reikn­ingum fyr­ir­tækj­anna. Veiði­gjöldin mið­ast við fisk­veiði­árið 2016/17. Hvað varðar tekjur fisk­vinnslu­fólks er miðað við mið­gildi heild­ar­launa yfir 300 þús­unda tekju­trygg­ingu, þ.e. 468 þús­und krónur á mán­uði. Sam­an­burður …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

0,1 prósentið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár