Veirusmit við samfarir getur valdið leghálskrabbameini

Regluleg mæt­ing í leg­háls­skoðun skiptir miklu máli. Með almennri þátt­töku stúlkna í bólu­setn­ingu ætti að vera unnt að útrýma veirunni.

Veirusmit við samfarir getur valdið leghálskrabbameini
Lést af völdum krabba­meins Leiði Heiðu Dísar Ein­ars­dóttur í kirkju­garði í Óðins­véum.

Mik­il­vægt er að mæta reglu­lega í leg­háls­skoðun hjá Krabba­meins­fé­lagi Íslands, kven­sjúk­dóma­læknum, hjá heilsu­gæslu­stöðvum eða heim­il­is­læknum. Um ein­falda en mik­il­væga rann­sókn er að ræða. HPV-veiran, sem getur smit­ast við sam­farir, er algeng. Til eru rúm­lega 100 stofnar veirunnar og getur hluti þeirra valdið frumu­breyt­ingum sem geta síðan orðið að leg­hálskrabba­meini ef ekk­ert er að gert. Þá valda sumar HPV-teg­undir kyn­færa­vörtum. Síðustu ár hefur stúlkum verið boðið upp á bólu­setn­ingu gegn HPV-veirunni en þrátt fyrir það er nauð­syn­legt að mæta reglu­lega í leg­háls­skoðun.

HPV-veirusmit er mjög algengt og er talið að um 80 pró­sent kvenna sem stunda kyn­líf smit­ist af HPV-veirunni, sem smit­ast við kyn­mök eða nána snert­ingu húðar á kyn­færa­svæði. HPV-stofnar eru margir og er talið að und­ir­teg­undir séu rúm­lega 100 tals­ins. Tæplega 30 teg­undir veirunnar geta valdið frumu­breyt­ingum í kyn­færum kvenna, um 15 þeirra tengj­ast leg­hálskrabba­meini en aðrar geta valdið vörtum á kyn­færum. Tveir stofnar veirunnar valda um 70 …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár