Vestfirðingar fylkja sér að baki Arnarlaxi

„Fyrir ári síðan keyptum við okkur einbýlishús í Tálkna­firði og erum komin til að vera. Ég er stoltur af því að vera í #teamarnarlax.“ Vest­firð­ingar hafa sýnt laxeldis­fyrirtækinu Arnarlaxi stuðning með færslum á samfélags­miðlum undir myllu­merkinu #teamarnarlax.

Vestfirðingar styðja Arnarlax
Vest­firð­ingar styðja Arnarlax Íbúar á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, og fleiri, hafa und­an­farna daga fylkt sér að baki lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi. Mynd: #teamarnarlax

Bílddælingar, Tálknfirðingar og fleiri hafa síðustu daga fylkt sér að baki laxeldis­fyrirtækinu Arnarlaxi. Það hafa þeir gert með færslum á Facebook undir myllu­merkinu #teamarnarlax. Í umræddum færslum hefur fólk lýst því hversu mikilvægt það telur fyrir­tækið vera fyrir atvinnulíf á sunnan­verðum Vestfjörðum, bæði með beinum hætti og afleiddum störfum.

Færslurnar hafa flestar verið birtar inni á Facebook-síðunni Styðjum við uppbyggingu laxeldis á Íslandi til framtíðar. Í upplýsingum um síðuna kemur fram að hún sé „ekki frétta­miðill heldur samfélags­síða áhuga­fólks um uppbygginginu á fiskeldi. Tilgangurinn er að birta fleiri hliðar á fiskeldi en þá einhliða og oft á tíðum villandi umræðu sem hefur einokað flesta miðla. Einnig að sýna andlitin á fólkinu sem við þetta starfar.“ Þá er tiltekið að umrædd síða sé ekki á vegum fyrir­tækja heldur sjái sjálfboða­liðar um ritstjórn.

Meðal þeirra sem lýsa yfir stuðningi við Arnarlax er fólk sem hefur alist upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár