Vestfirðingar fylkja sér að baki Arnarlaxi

„Fyrir ári síðan keyptum við okkur ein­býl­is­hús í Tálkna­firði og erum komin til að vera. Ég er stoltur af því að vera í #teamarn­ar­lax.“ Vest­firð­ingar hafa sýnt lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi stuðn­ing með færslum á sam­fé­lags­miðlum undir myllu­merk­inu #teamarn­ar­lax.

Vestfirðingar styðja Arnarlax
Vest­firð­ingar styðja Arnarlax Íbúar á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, og fleiri, hafa und­an­farna daga fylkt sér að baki lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi. Mynd: #teamarnarlax

Bíld­dæl­ingar, Tálkn­firð­ingar og fleiri hafa síð­ustu daga fylkt sér að baki lax­eld­is­fyr­ir­tæk­inu Arn­ar­laxi. Það hafa þeir gert með færslum á Facebook undir myllu­merk­inu #teamarn­ar­lax. Í umræddum færslum hefur fólk lýst því hversu mik­il­vægt það telur fyr­ir­tækið vera fyrir atvinnu­líf á sunn­an­verðum Vest­fjörðum, bæði með beinum hætti og afleiddum störfum.

Færsl­urnar hafa flestar verið birtar inni á Facebook-síð­unni Styðjum við upp­bygg­ingu lax­eldis á Íslandi til fram­tíðar. Í upp­lýs­ingum um síð­una kemur fram að hún sé „ekki frétta­mið­ill heldur sam­fé­lags­síða áhuga­fólks um upp­bygg­ing­inu á fisk­eldi. Til­gang­ur­inn er að birta fleiri hliðar á fisk­eldi en þá ein­hliða og oft á tíðum vill­andi umræðu sem hefur ein­okað flesta miðla. Einnig að sýna and­litin á fólk­inu sem við þetta starfar.“ Þá er til­tekið að umrædd síða sé ekki á vegum fyr­ir­tækja heldur sjái sjálf­boða­liðar um rit­stjórn.

Meðal þeirra sem lýsa yfir stuðn­ingi við Arnarlax er fólk sem hefur alist upp …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár