Svona breytast útgjöld ríkisins á næsta ári

Mest aukn­ing til sjúkra­hús­þjón­ustu en hlut­falls­lega mest til vinnu­mark­aðs­mála og almanna- og réttar­ör­ygg­is­mála.

Svona breytast útgjöld ríkisins á næsta ári
For­dæma­laus útgjalda­aukn­ingi Rík­is­stjórnin boðar stór­aukin útgjöld til ýmissa mála­flokka í fjár­laga­frum­varpi næsta árs. Mynd: Pressphotos.biz

Almanna- og réttar­ör­yggi, örorka og mál­efni fatl­aðs fólks, fjöl­skyldu­mál, fjöl­miðlun og vinnu­mark­aðs- og atvinnu­leys­is­mál. Þetta eru mála­flokk­arnir þar sem aukn­ing útgjalda verður hlut­falls­lega mest milli áranna 2018 og 2019 sam­kvæmt nýkynntu fjár­laga­frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar. 

Hlut­falls­leg aukn­ing er mest til mál­efna­sviðs­ins vinnu­mark­aður og atvinnu­leysi þar sem útgjöldin aukast úr 19,2 millj­örðum í 24,1 millj­arð, alls um 4 millj­arða að frá­töldum almennum launa- og verð­lags­breyt­ingum. Tvær meg­in­skýr­ingar eru á þessu; ann­ars vegar 2,3 millj­arða hækkun bóta Atvinnu­leys­is­trygg­inga­sjóðs og hins vegar spá Hag­stof­unnar um aukið atvinnu­leysi árið 2019, hækkun úr 2,9 pró­sentum í 3,3 pró­sent.

Í krónu­tölum er það sjúkra­hús­þjón­usta, stærsti útgjalda­liður rík­is­sjóðs á eftir vaxta­gjöldum, sem á vinn­ing­inn. Útgjöld til mála­flokks­ins aukast um tæpa 10 millj­arða sam­kvæmt fjár­laga­frum­varpi næsta árs. Alls nemur hækkun fram­laga til heil­brigð­is­mála 12,6 millj­örðum króna að frá­töldum launa- og verð­lags­hækk­unum. 

Hér má sjá yfir­lit sem Stundin tók saman yfir þær breyt­ingar sem verða á útgjöldum mál­efna­sviða A-hluta rík­is­ins milli 2018 og 2019:

Útgjöld til sex mál­efna­sviða drag­ast saman. Þetta eru Alþingi og eft­ir­lits­stofn­anir þess, hag­skýrslu­gerð, grunn­skrár og upp­lýs­inga­mál, nýsköpun, rann­sóknir og þekk­ing­ar­greinar, rétt­indi ein­stak­linga, trú­mál og stjórn­sýsla dóms­mála, sjáv­ar­út­vegur og fisk­eldi og mál­efna­svið sem tekur til stjórn­sýslu mennta­mála og ann­arra skóla­stiga en fram­halds­skóla og háskóla. Þá lækkar vaxta­byrði rík­is­sjóðs umtals­vert vegna nið­ur­greiðslu skulda.

7,2 millj­örðum verður varið til fram­kvæmda við nýjan Land­spít­ala árið 2019 en jafn­framt aukast fram­lög vegna bygg­ingar og rekstrar hjúkr­un­ar­heim­ila. 

Aukið er við fram­lög til félags-, hús­næðis- og trygg­inga­mála en þar nemur heild­ar­hækk­unin 13,3 ma.kr. að frá­töldum launa- og verð­lags­hækk­unum. Stuðn­ingur vegna hús­næðis eykst um ríf­lega 900 milj­ónir króna og mun nema 25,4 millj­örðum árið 2019. 

Kynnti fjár­löginBjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra kynnti fjár­laga­frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar á frétta­manna­fundi í dag.

Gert er ráð fyrir 5,5 millj­arða króna aukn­ingu til sam­göngu­mála sem skýrist fyrst og fremst af sér­stöku átaki í sam­göngu­málum á árunum 2019-2021 sem fjár­magnað verður með tíma­bundnum umfram­arð­greiðslum fjár­mála­fyr­ir­tækja líkt og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn setti á odd­inn fyrir síð­ustu þing­kosn­ingar og boðað var í fjár­mála­á­ætlun og stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar.

Framlög til sam­göngu- og fjar­skipta­mála verða aukin um 9% á árinu 2019 og verða ríf­lega 43,6 millj­arðar króna. Meðal ann­arra stórra fjár­fest­ing­ar­verk­efna eru fyrstu fram­lög til kaupa á nýjum þyrlum fyrir Land­helg­is­gæsl­una sem gert er ráð fyrir að verði afhentar árið 2022, auk upp­bygg­ingar Húss íslensk­unnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár