Íslensk stjórnvöld synja Kúrdum um hæli: „Þá verðum við sendir beint til Íraks“

Hópur fólks mótmælti þeirri ákvörðun Útlendinga­stofnunar að synja sjö Kúrdum um alþjóð­lega vernd við dómsmála­ráðuneytið í dag. Mohamed Sabir, einn Kúrdanna, segir mikla hættu steðja að þeim í Írak.

Mótmælt við dómsmálaráðuneytið
Mótmælt við dóms­mála­ráðu­neytið Mót­mæl­endur kröf­uðst þess að hætt yrði við brott­vís­anir til Íraks og Kúr­distan. Mynd: Diljá Sigurðardóttir

„Ef ég verð sendur til baka verð ég í mikilli hættu,“ segir Mohamed Sabir, kúrdískur hælis­leitandi á Íslandi sem nýlega kærði ákvörðun Útlendinga­stofnunar um að synja honum alþjóð­lega vernd til kæru­nefndar útlendinga­mála. Hópur fólks kom saman fyrir utan dómsmála­ráðuneytið í dag og mótmælti synjun á umsókn hans og sex annarra Kúrda. 

Mohamed Sabir

„Útlendinga­stofnun hefur þegar hafnað okkur og við bíðum niður­stöðu áfrýjunar,“ segir Mohamed. „Ef okkur verður hafnað aftur þá verðum við sendir beint til Íraks. Írak er ekki öruggt land. Við flúðum þaðan hver og einn úr mismun­andi aðstæðum. Við þekkjumst ekki en erum allir frá Kúrdistan.“

„Írak er ekki öruggt land.“

Kúrdistan nær yfir svæði innan Írak, Sýrlands, Íran og Tyrklands þar sem Kúrdar eru í meirihluta. Svæðið hefur ekki farið varhluta af Sýrlensku borgara­styrjöldinni og skæru­hernaði ISIS á undan­förnum árum. Nú síðast í janúar réðist tyrkneski herinn inn í Afrin hérað í norður­hluta Sýrlands. Eins og fram hefur komið er talið að Íslend­ingurinn Haukur Hilmarsson hafi fallið í árásum Tyrkja á svæðinu í lok febrúar, en þar tók Haukur meðal annars þátt í baráttu Kúrda gegn hryðjuverka­samtökunum ISIS.

Mohamed vann í olíu­iðnaðinum í Kúrdistan en segir ástandinu hafa hrakað með uppgangi ISIS árið 2014. „Ég vann þar í næstum níu ár en eftir þetta vildu viðskipta­vinir og fyrirtæki fara af svæðinu af ótta um öryggi sitt,“ segir Mohamed. „Ég á fjöl­skyldu, tvö börn sem eru enn í Norður-Írak.“

Hver umsókn skoðuð sérstaklega óháð upprunalandi

Mennirnir sjö afhentu í dag starfs­fólki dómsmála­ráðuneytisins undir­skriftar­lista og kröfðu mótmælendur stjórn­völd um að stöðva fyrir­hugaðar brott­vísanir. Með undir­skriftunum er farið fram á að Ísland brottvísi ekki flótta­fólki til Írak og Kúrdistan, sem eru stríðs­hrjáð svæði.

Að sögn Þórhildar Óskar Hagalín, upplýsinga­fulltrúa Útlendinga­stofnunar, er hver umsókn um alþjóð­lega vernd skoðuð sérstak­lega sama frá hvaða ríki einstaklingur kemur. „Það gildir um þessi lönd eins og önnur að þegar umsókn um hæli er lögð inn er lagt mat á það hvort ástæður og skilyrði alþjóðlegrar verndar séu uppfyllt, sem eru ofsóknir,“ segir Þórhildur. „Það er litið til þess frá hvaða svæðum einstaklingar koma og hver þeirra saga er. Það að koma frá einu ríki leiðir aldrei til einnar ákveðinnar niður­stöðu.“

Textinn sem fylgdi undirskriftalista mótmælenda

„Fyrr í þessum mánuði synjuðu íslensk stjórn­völd sjö flótta­mönnum frá svæðum sem kallast bæði Írak og Kúrdistan um alþjóð­lega vernd. Flestir þeirra eiga að baki hættulega ferð yfir ótal landamæri þar sem treysta þarf á smyglara. Margir neyddust til þess að skilja fjöl­skyldur sínar eftir í mjög erfiðum og lífs­hættulegum aðstæðum í von um að fá hjálp við fjölskyldu­sameiningu eftir að fá vernd. Með því að neita mönnunum um vernd er börnum þeirra líka neitað um möguleika á lífi án stríðs­átaka.

Þessar synjanir þýða að íslensk stjórn­völd senda mennina alla leið til Írak um leið og þau fullyrða að þeir séu ekki flótta­menn, jafnvel þó að írakska Kúrdistan sé ekki á lista yfir örugg ríki. Þessar synjanir marka því nýja stefnu­mótun er varðar mál frá Írak og Kúrdistan af hálfu Útlendinga­stofnunar og íslenska ríkisins, þar sem virðist hafa verið ákveðið að Írak sé öruggt land án frekari vísbendinga eða útskýringa. Ástæðurnar sem flótta­mönnunum hafa verið gefnar eru að þeir geti leitað sér skjóls í öðrum borgum innan Írak, jafnvel þó að það sé ekki möguleiki í þeirra tilviki. Írak er langt frá því að vera öruggt ríki fyrir þá að snúa aftur til. Þvert á móti stunda þeir tveir flokkar sem fara með völd í írakska Kúrdistan, KDP og PUK, mannrán og morð á almennum borgurum. Hver sá sem starfar fyrir stjórn­völd þar í landi þarf að fá meðmæli frá öðrum hvorum flokknum og er bæði lögreglu­yfirvöldum og fjármála­markaðinum stýrt af öflum flokkana tveggja.

Við krefjumst þess að ÚTL og íslensk stjórn­völd stöðvi fyrir­hugaðar aðgerðir um að brottvísa flótta­mönnum til Írak og Kúrdistan!

Við krefjumst þess að helstu áhrifa­valdar að baki þessum málum hætti að fela sig á bakvið stofnanir og taki ábyrgð: Sigríður Á. Andersen, dómsmála­ráðherra, Kristín Völundar­dóttir, forstjóri Útlendinga­stofnunar, Hjörtur Bragi Sverrisson, formaður Kæru­nefndar og Katrín Jakobs­dóttir, forsætis­ráðherra, hættið við brott­vísanir flótta­fólks til Írak og Kúrdistan!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár