Ásmundur Friðriksson um ljósmæður: „Ljótleiki kjarabaráttunnar á sér engin takmörk“

Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins talar um „ljót­leika“ kjara­bar­áttu ljós­mæðra á Facebook síðu sinni. Mynd af óléttri konu með mót­mæla­skilti sem á stendur „Helvítis fokk­ing fæð­ingar“ virð­ist orsök gagn­rýn­innar.

Ásmundur Friðriksson um ljósmæður: „Ljótleiki kjarabaráttunnar á sér engin takmörk“
Ásmundur Frið­riks­son Þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks gagn­rýnir kjara­bar­áttu ljós­mæðra á Facebook.

Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gagn­rýndi kjara­bar­áttu ljós­mæðra á Facebook síðu sinni. „Ljót­leiki kjara­bar­átt­unnar á sér engin tak­mörk,“ skrifar Ásmundur og birtir mynd af for­síðu Frétta­blaðs­ins í dag.

Á for­síð­unni er mynd frá und­ir­bún­ingi sam­stöðu­fundar með ljós­mæðrum þar sem ólétt kona býr til mót­mæla­skilti. Á skilt­inu stendur „Helvítis fokk­ing fæð­ingar.“

Óljóst er hvort Ásmundur er þarna að gagn­rýna orð­notkun kon­unnar eða kjara­bar­áttu ljós­mæðra í heild. Þegar blaða­maður hringdi í Ásmund sagð­ist hann vera á fundi og ekki hafa tíma til að tala.

Viðbrögð les­enda á Facebook síðu Ásmundar eru mest megnis nei­kvæð. „Ég hélt fyrst að XD væri að taka upp hansk­ann fyrir ljós­mæður en auð­vitað var það ekki svo gott,“ skrifar Arnar Eggert Thorodd­sen tón­list­ar­gagn­rýn­andi. „Hvað er "ljótt" hér? Þessi sjálf­sögðu, eðli­legu og mjög svo skilj­an­legu skila­boð frá vamm­lausu fólki sem er ein­fald­ega með mann­eskju­legar launa­kröfur? Eða er það kannski fram­koma rík­is­stjórn­ar­innar, fyr­ir­litn­ingin þar og hin ómann­eskju­lega for­gangs­röðun fjár­muna? Það bara hlýtur að vera sá ljót­leiki sem þú vísar í. Annan sé ég ekki hér.“

Meðal þeirra sem „læka“ færslu Ásmundar er Karl Sig­ur­björns­son, fyrr­ver­andi biskup Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár