Greiðsluþakið hækkað þrátt fyrir loforð um lækkun

Eitt af fyrstu emb­ætt­is­verkum Svan­dísar Svav­ars­dóttur sem heil­brigð­is­ráð­herra var að hækka kostn­að­ar­þak heim­il­anna fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu. Það gerði hún þrátt fyrir lof­orð Alþingis um lækkun þess og skýr skila­boð stjórn­ar­sátt­mál­ans þess efnis.

Greiðsluþakið hækkað þrátt fyrir loforð um lækkun
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bragi Þór Jósefsson

Eitt af fyrstu emb­ætt­is­verkum Svan­dísar var að hækka hámarks­kostnað heim­il­anna í heil­brigðis­út­gjöldum um tvö pró­sent. Þá hækk­uðu sam­tímis komu­gjöld á sjúkra­hús um 2,3 til 3,2 pró­sent og ein­ing­ar­verð sjálf­stætt starf­andi sér­fræði­lækna hækk­aði um tæp fimm pró­sent um síð­ustu ára­mót. 

Uppfært: Vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefur sent frá sér til­kynn­ingu vegna frétt­ar­innar. Þar segir að hækkun greiðslu­þakanna komi til vegna verð­lags­upp­færslna til sam­ræmis við for­sendur fjár­laga árs­ins 2018. Segir ráðu­neytið því að ekki sé um að ræða raun­hækk­anir. Tilkynnt var um hækk­una á vef stjórn­ar­ráðs­ins í mars. Í upp­haf­legu fréttt­inni var sagt að ekki hefði verið til­kynnt um hækk­un­ina á vef stjórn­ar­ráðs­ins. Það var rangt og leið­rétt­ist hér með.

Heild­ar­kostn­aður sjúk­linga vegna heil­brigð­is­þjón­ustu getur ekki orðið hærri en 71 þús­und krónur á ári hjá almennum not­anda en um 47 þús­und hjá elli- og örorku­líf­eyr­is­þegum, sam­kvæmt reglu­gerð Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Þegar reglu­gerðin var upp­haf­lega sett var kostn­að­ar­þakið hins vegar um 69 þús­und krónur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár