Arnþrúður dæmd til að greiða 4 milljónir króna

Arn­þrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri Útvarps Sögu, var í dag dæmd til að greiða Guðfinnu Karls­dóttur 3,3 millj­ónir króna auk rúmra 600 þús­unda króna í máls­kostnað. Deilt var um hvort um lán hefði verið að ræða eða styrk.

Arnþrúður dæmd til að greiða 4 milljónir króna
Arn­þrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri Útvarps Sögu. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur dæmdi Arnþrúði fyrr í dag til að end­ur­greiða Guðfinnu Karls­dóttur rúm­lega 3 millj­ónir króna. Mynd: Útvarp Saga

Arn­þrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri Útvarps Sögu, var fyrr í dag dæmd í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur til að greiða Guðfinnu Karls­dóttur 3,3 millj­ónir króna auk 620 þús­und krónur í máls­kostnað. Ágrein­ingur var uppi um hvort að pen­ingar sem Guðfinna lét Arnþrúði af hendi hefðu verið lán eða styrkur en pen­ing­arnir voru lagðir inn á per­sónu­legan reikn­ing Arn­þrúðar.

Um fjórar greiðslur var að ræða, ein að upp­hæð tvær millj­ónir króna, tvær 500 þús­unda króna greiðslur og ein að upp­hæð 300 þús­und krónum. Fyrir dómi hélt Arn­þrúður því fram að fjár­fram­lögin hefðu verið til greidd til styrktar rekstri Útvarps Sögu. Aldrei hefði verið haft orð á því að um lán væri að ræða og engum lána­samn­ingi væri til að dreifa. Pétur Gunn­laugs­son, útvarps­maður á Útvarpi Sögu og eig­in­maður Arn­þrúðar, varði Arnþrúði í mál­inu og kom fram sem vitni. Tók hann undir frá­sögn Arn­þrúðar og taldi Guðfinnu vera styrkt­ar­að­ila útvarps­stöðv­ar­innar.

Nið­ur­staða hér­aðs­dóms var sú …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár