Páll Óskar vill að Eurovision í Ísrael verði sniðgengið

Segir tæki­færi til að mót­mæla fjöldamorðum Ísra­els­hers í Palest­ínu með snið­göngu. Segist ekki hafa geð í sér til að troða upp í Jer­úsalem meðan á blóð­baði stendur hinum meg­inn við vegg­inn

Páll Óskar vill að Eurovision í Ísrael verði sniðgengið
Vill að RÚV snið­gangi Eurovision Páll Óskar seg­ist ekki hafa geð í sér til að troða upp í keppn­inni á meðan að Ísra­els­her myrði óbreytta palest­ínska borg­ara og spyr hver geti hugsað sér að gera það.

Páll Óskar Hjálmtýs­son, tón­list­ar­maður og fyrr­ver­andi kepp­andi fyrir Íslands hönd í Eurovision söngvakeppn­inni, hvetur til þess að Rík­is­út­varpið snið­gangi keppn­ina á næsta ári. Ástæðan eru mann­rétt­inda­brot Ísraela á Palstínu­mönnum á Gaza. „Hver hefur geð á því að troða upp í Jer­úsalem með yfir­stand­andi blóð­bað hinum megin við vegg­inn? Ekki ég,“ skrifar Páll Óskar á Facebook-síðu sína.

Páll Óskar segir að eins og hann elski nú söngvakeppn­ina mikið þá telji hann það eðli­legt að sitja hjá og snið­ganga keppn­ina þegar hún er haldin af þjóðum sem hafi gerst brot­leg við alþjóða­lög, stundi mann­rétt­inda­bort og blóð­uga stríðs­glæpi nær því hvern dag, og hafi gert síð­ustu 70 ár. Nú glæði upp­lýs­ingar til fólks sem hafi hugs­an­lega verið glóru­laust um það hversu alvar­legt ástandið á Gaza-strönd­inni sé. „Ég var einn af þeim glóru­lausu. Ég hafði ósköp litla hug­mynd um hvað væri í gangi þarna síð­ast þegar Íslend­ingar kepptu í Jer­úsalem árið 1999.“

Nú viti hann, og aðrir, betur. „Eurovision bliknar og blánar í sam­an­burði við yfir­gang­inn, stjórn­sem­ina og frekj­una sem sponsuð af Banda­ríkj­unum og nú á að fara í fegr­un­ar­að­gerð á ímynd Ísraels út á við með Eurovision.“

„Barnamorð er ómennska“

Nú gef­ist, skrifar Páll Óskar, kjörið tæki­færi til að mót­mæla fjöldamorðum Ísra­els­hers í Palest­ínu og setja Ísrael mörk á alþjóða­vísu. „Kæra RÚV. Nýtið þetta tæki­færi og mót­mælið með fjar­veru ykkar/okkar Íslend­inga. Þessu afneit­unar-gleðipar­tíi tökum við ekki þátt í. Skemmti­efni, dæg­ur­lög og glam­úr­gallar eru nefni­lega víst bull­andi póli­tískt mál. Að reyna að aðskilja póli­tík og skemmti­efni eða íþróttir er fyr­ir­sláttur. Barna­morð er að mínu áliti komið út fyrir það að vera póli­tík. Barna­morð er ómennska. 

Snið­göngum Eurovision 2019. RÚV gæti gert margt frá­bært við pen­ing­ana: Meira tón­list­ar­efni, jafn­vel okkar eigin íslensku laga­keppni, leikið efni sem og barna­efni á RÚV. Að sleppa einni Eurokeppni er lítið mál sam­an­borið við þjóð­ar­morð Ísreals á Palest­ínu. Hver hefur geð á því að troða upp í Jer­úsalem með yfir­stand­andi blóð­bað hinum megin við vegg­inn? Ekki ég.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár