Ánægjan er mikilvægari en stanslaus yfirþyrmandi sæla

Atli Sig­þórs­son, eða Kött Grá Pje, fann ham­ingj­una með því að fylgja ráðum forn­gríska heim­spek­ings­ins Epík­úrusar.

Ánægjan er mikilvægari en stanslaus yfirþyrmandi sæla

Atli Sig­þórs­son er betur þekktur sem skáldið og rapp­ar­inn Köt Grá Pje, en í því gervi skrifar hann texta sem bera vott um bull­andi tóm­hyggju, böl­sýni og kald­hæðni, og það er aldrei langt í exístens­íal­íska krísu. Atli hefur glímt við þung­lyndi frá ung­lings­árum og segir að það hafi sett strik í ham­ingju­reikn­ing­inn, en hann hafi gjarnan litið til kenn­inga forn­gríska heim­spek­ings­ins Epík­úrusar til að öðl­ast jafn­vægi og á seinni árum hafi hann lært að hætta að byrgja til­finn­ing­arnar inni.

Miklar breytingar á stuttum tíma

„Það er rúm­lega ár frá því að ég var upp á mitt óham­ingju­samasta, sem ger­ist í kjöl­far sam­bands­slita á mjög löngu sam­bandi, 13 ára sam­bandi, sem ég hafði verið í síðan ég var í mennta­skóla. Það er eins og er alltaf með svona stóra, erf­iða við­burði, það er hálf­gerður heimsendir. Því fylgir ofsa­fengin óham­ingja, algjör van­sæld, og kannski ekki eitt­hvað sem ég hef þurft að eiga við nema á til­teknum tíma­bilum.

Ég hef strítt við þung­lyndi síðan ég var ung­lingur, og þá er maður ekki ham­ingju­samur, eðli máls­ins sam­kvæmt. Ég hef ekki alltaf verið lengst niðri, þótt ég sé þung­lyndur þá hef ég oft haft það fínt, en ég var líka að gera ýmis­legt upp í fyrra. Það urðu tals­vert miklar breyt­ingar á lífi mínu á skömmum tíma.

„Ég hef ekki alltaf verið lengst niðri, þótt ég sé þung­lyndur þá hef ég oft haft það fínt“

Ekkert fyrir löngu ákvað ég að ger­ast starf­andi lista­maður og hætta að vera að böggl­ast í ein­hverjum skrif­stofu­vinnum og það fylgir því bara ýmis­legt upp­brot og álag og skringi­leg­heit að gera svona skurk í líf­inu. En það var greini­lega til­raun af minni hálfu til að nálg­ast ham­ingj­una, því þetta er eitt­hvað sem hefur alltaf blundað í mér, að fást við list og skrifa og flytja tón­list og þvíum­líkt. Ég hafði alltaf gert það með hálfum hug í besta falli, eða hálfu hjarta og með­fram ein­hverju, en þegar að ég ákvað að ég yrði að láta á það reyna, þá var það í raun til­raun til þess að nálg­ast ham­ingj­una, að verða ham­ingju­samur, að gera það sem mig langar að fást við.“

Allt er gott í hófi

„Ég spek­úlera í ham­ingj­unni, og hef heldur jarð­bundna sýn á hana, sem er það að lifa í sátt við sínar aðstæður frekar en stans­laus yfir­þyrm­andi sæla. Sælan er hluti af ham­ingj­unni, og maður vill finna fyrir sterkri sælu af og til, en ég held að hún sé ekki allt. Það skipt­ast á skin og skúrir þrátt fyrir að maður sé á góðum stað í líf­inu, og það er hluti af prógramm­inu að vera ekki alltaf dans­andi ofan á blómum.

Allt frá mennta­skóla­árum hef ég verið hrif­inn af Epík­úrusi og hans hug­myndum um ánægju útreikn­inga, en mér finnst það jarð­bundin og skemmti­leg nálgun. Epík­úristar eru ekki full­komnir hedónistar, og gáfu það ekki upp á bát­inn að reyna að áorka ein­hverju eins og hund­in­gj­arnir. Epíkúrus sagði að það væri gott að drekka vín með vinum, hafa gaman og eiga góðar sam­ræður, en ef þú drekkur of mikið þá kemur það í koll­inn á þér dag­inn eftir, og þér líður illa í lík­ama og sál, þannig að þú þarft að vega og meta hversu margar karöflur þú getur notið án þess að þér hefn­ist fyrir það. Allt er gott í hófi.

„Ég reyndi að fela þetta, en ég var oft heima hjá mér grenj­andi“

Ég er samt hrif­inn af smá öfgum, af og til, finnst gaman að fá mér í glas og ég vil finna fyrir ofboðs­legum sæt­indum. Ég er í dag upp­tek­inn af því að vera ást­fang­inn, en því fylgja alls konar erf­ið­leikar líka og það er bara partur af því. Ég held að það að vera ham­ingju­samur sé bara að finna leið til að finna jafn­vægi, og þar komum við aftur að sátt­inni; ef eitt­hvað bjátar á þá ertu meira til­bú­inn til að takast á við það ef þú ert sáttur. Ég er alveg búinn undir það að þetta nýja og sterka sam­band verður ekki alltaf bara ein­tóm sæla, en það er hluti af því að elska. Því fylgja þær kvaðir að þú tekur þátt í erf­ið­leikum elsk­hug­ans og deilir þínum erf­ið­leikum með honum.“

Eitruð karlmennska er samfélagsmein

„Ég var voða­lega lengi að böggl­ast með þung­lyndið einn, eins og það væri manns­morð. Það var eitt­hvað sem mér fannst að ég, karl­maður, ætti bara að díla við í hljóði, bæla þetta og byrgja inni og trukka í gegnum, en það var algjört nið­ur­brot. Ég reyndi að fela þetta, en ég var oft heima hjá mér grenj­andi. Þessi hegðun er bara vond og eyði­leggur fyrir manni og minnkar lík­urnar á því að maður geti orðið ham­ingju­samur ein­stak­lingur.

„Þessi eitr­aða karl­mennska er sam­fé­lags­mein. Hún eyði­leggur, og ég sóaði mörgum árum í því að standa í þessu. Ég var fyrst og fremst sá sem þurfti að gjalda fyrir það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár