Ætlar ekki að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum

Íris Róberts­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gefur kost á sér í odd­vita­sæti nýs fram­boðs í Vest­manna­eyjum. Vill lýð­ræð­is­legri vinnu­brögð.

Ætlar ekki að segja sig úr Sjálfstæðisflokknum
Átök í Eyjum Nýtt fram­boð mun bjóða fram til sveit­ar­stjórnar í Vest­manna­eyjum. Einn helsti hvat­inn að hinu nýja fram­boði er óánægja sumra Sjálf­stæð­is­manna með starf flokks­ins í Eyjum, meðal ann­ars með þá leið sem farin var við val á lista. Íris Róberts­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­kona Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur gefið kost á sér til að leiða hinn nýja lista. Mynd: Twitter

Deilur um upp­still­ingu á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum komust í hámæli snemma árs en þá var felld til­laga um að halda skyldi próf­kjör innan flokks­ins. Slík leið hefur ekki verið farin í 28 ár, þrátt fyrir að próf­kjörsleiðin sé meg­in­regla í sam­þykktum Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar kemur að upp­still­ingu á fram­boðs­lista hans. Óánægja sumra Sjálf­stæð­is­manna með nið­ur­stöð­una var slík að í síð­ustu viku var boðað til stofn­fundar bæj­ar­mála­fé­lags í Vest­manna­eyjum og varð nið­ur­staðan sú að það félag myndi bjóða fram í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum. Þau tíð­indi urðu síðan að Íris Róberts­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­kona flokks­ins, steig fram í byrjun þess­arar viku og lýsti því yfir að hún gæfi kost á sér til að leiða list­ann.

Mikið vígi flokksins

Vest­manna­eyjar hafa verið gríð­ar­legt vígi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn ára­tugum saman. Frá árinu 1990 hefur flokk­ur­inn hlotið hreinan meiri­hluta í öllum bæj­ara­stjórn­ar­kosn­ingum þar, utan árið 2002 þegar flokk­ur­inn fékk þrjá bæj­ar­full­trúa kjörna af sjö. Í síð­ustu kosn­ingum, 2014, vann flokk­ur­inn síðan fáheyrðan sigur og hlaut 73 pró­sent greiddra atkvæða. Því eru það nokkur tíð­indi nú að óánægja innan flokks­ins hafi brot­ist með þessum hætti upp á yfir­borðið og valdi því að Sjálf­stæð­is­fólk bjóði nú fram gegn félögum sínum.

Stundin heyrði í Írisi og grennsl­að­ist fyrir um það hví hún hefði ákveðið að gefa kost á sér til að leiða hinn nýja lista. Íris segir að það hafi átt sér nokkurn aðdrag­anda. „Það hafa verið svona ýmsar vær­ingar í kringum fram­boðs­málin og það var ekki sér­stök sátt um hvernig ætti að velja á lista Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Ég fór á fund bæj­ar­mála­fé­lags­ins sem stofnað var hér í síð­ustu viku, dag­inn eftir að listi Sjálf­stæð­is­flokks­ins var kynntur, og mér leist afar vel á það. Félagið á að standa fyrir flott grunn­gildi og lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð sem mér líst mjög vel á. Þann dag fékk ég áskorun frá 195 Vest­manna­ey­ingum um að gefa kost á mér til að leiða nýjan lista og ég tók bara ákvörðun um að gefa kost á mér.“

Þáði ekki þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins

Vest­manna­eyjar

Íris vill ekki sam­þykkja að bæj­ar­mála­fé­lagið sá aðeins óánægju­fram­boð ósátts Sjálf­stæð­is­fólks, það sé opið öllum íbúum Vest­manna­eyja og allir séu vel­komnir. Félagið sé í eðli sínu þverpóli­tískt. „En það eru vissu­lega und­ir­liggj­andi ástæður fyrir því að fólk vilji finna sér annan vett­vang. Allir sem þarna koma að vilja bæta sam­fé­lagið og láta gott af sér leiða. Mér finnst að það þurfi að ástunda lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð til að bæta sam­fé­lagið.“

Hefði verið sam­þykkt að halda próf­kjör hjá Sjálf­stæð­is­flokknum í Eyjum, þá hefði Íris gefið kost á sér þar, segir hún. Það gaf hún út strax í jan­úar. Spurð hvort rætt hafi verið við hana um að taka sæti á lista flokks­ins, eftir að til­laga um próf­kjör var felld, játar hún því. „Það var rætt við mig í byrjun mars og mér boðið þriðja sæti en það voru ástæður fyrir því að ég vildi ekki þiggja það. Það var ekki haft sam­band aftur.“

Ekki tími fyrir prófkjör

Íris seg­ist ekki hafa áhuga á að fara að greina ástæður deilna innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Vest­manna­eyjum. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur haft afskap­lega sterka stöðu lengi í Vest­manna­eyjum. Það sem hefur hins vegar ekki verið gert í 28 ár er að halda próf­kjör. Hér er ofboðs­lega margt fólk skráð í flokk­inn sem myndi vilja hafa áhrif á hvernig lista flokks­ins er stillt upp en það varð ekki. Þetta þyrfti að vera opn­ara og lýð­ræð­is­legra.“

Þegar bent er á að ekki standi til að halda próf­kjör innan bæj­ar­mála­fé­lag­is­ins og Íris spurð hvort það sé ekki í mót­sögn við hennar mál­flutn­ing svarar hún því ját­andi. „Bæj­ar­mála­fé­lagið er stofnað mjög seint í aðdrag­anda kosn­inga og helsta gagn­rýnin sem ég heyri er á þetta, að stjórn bæj­ara­mála­fé­lags­ins sá sér ekki fært að halda próf­kjör, þvert á það sem ég hefði viljað. Bæði er félagið ekki stjórn­mála­flokkur og svo er tím­inn bara orð­inn of naumur. Það hefði þurft mun lengri tíma, utan­kjör­funda­at­kvæða­greiðsla er til að mynda búin að vera í gangi í meira en viku. Ég fer samt ekki ofan af því að það að halda próf­kjör, að leyfa fólki að koma að málum, er alltaf besta leiðin. Ég hef alltaf talað fyrir því, það er meg­in­regla Sjálf­stæð­is­flokks­ins, en hún hefur því miður ekki verið virkjuð í Vest­manna­eyjum mjög lengi.“

Segir sig frá trúnaðarstörfum

Íris seg­ist þrátt fyrir þetta ekki ætla að segja sig úr Sjálf­stæð­is­flokknum en hún muni vissu­lega segja sig frá trún­að­ar­störfum. „Allar ákvarð­anir sem við tökum hafa áhrif á líf okkar. Ef ég tek sæti á lista bæj­ar­mála­fél­gs­ins mun ég segja mig frá þeim trún­að­ar­störfum sem ég gegni fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ég ætla hins vegar ekki að segja mig úr Sjálf­stæð­is­flokknum, en það eru að vísu skipu­lags­reglur innan flokks­ins sem segja að vísa eigi þeim úr flokknum sem taki sæti á lista ann­arra fram­boða.“

Spurð hvort að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi þá ekki staðið sig vel við stjórnun bæj­ar­fé­lags­ins, og eins hvort það verði ein­hver munur á stefnu­málum fram­boð­anna tveggja, svarar Íris því ját­andi í báðum til­vikum. „Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur að mörgu leyti staðið sig mjög vel, eins og bæj­ara­stjórn Vest­manna­eyja öll. En eins og alltaf er þá eru ákveðnir hlutir sem hægt er að gera betur. Ég ætla að fá að fara út í þá sálma seinna, ég er ekki komin með umboð til þess því ég er ekki enn orðin fram­bjóð­andi bæj­ar­mála­fé­lags­ins. Ég hef því ekki póli­tískt umboð til að svara neinu um þetta ennþá en með nýju fólki koma nýjar áherslur, það er alltaf þannig.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár