Utanríkisráðuneytið ekki haft samband við yfirvöld í Rojava og Írak vegna Hauks

Hvorki aðstand­endur Hauks Hilm­ars­sonar né utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis hafa fengið umbeðin gögn um leitar­að­gerðir ráðu­neyt­is­ins.

Utanríkisráðuneytið ekki haft samband við yfirvöld í Rojava og Írak vegna Hauks

Utan­rík­is­ráðu­neytið kveðst enn ekki hafa fengið stað­fest hvort Haukur Hilm­ars­son hafi yfir höfuð farið til Sýrlands né hvernig hann komst þangað. Rúmur mán­uður er lið­inn síðan fregnir bár­ust af því að Haukur hefði fallið í hern­að­ar­að­gerðum Tyrkja gegn Kúrdum í norð­ur­hluta Sýrlands. 

Haukur Hilm­ars­son

Ráðu­neytið hefur ekki haft sam­band við yfir­völd í Rojava, sjálf­stjórn­ar­ríki Kúrda, til að spyrj­ast fyrir um afdrif hans og heldur ekki haft sam­band við yfir­völd í Írak þrátt fyrir að fram hafi komið í fjöl­miðlum að Haukur hafi kom­ist til Sýrlands í gegnum Írak. 

„Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki haft sam­band við yfir­völd í Rojava enda er upp­lýs­inga­öflun á þessu svæði eftir form­legum leiðum því sem næst ómögu­leg sam­kvæmt upp­lýs­ingum ráðu­neyt­is­ins frá vina­þjóðum,“ segir meðal ann­ars í svörum utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. Þar segir jafn­framt: „Ekki hefur verið haft sam­band við stjórn­völd í Írak enda benda fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar ekki til að Haukur hafi farið þangað.“ Þetta kemur á óvart í ljósi þess að fram kom í yfir­lýs­ingu  International Freedom Battalion, hóps sós­í­alista og anar­kista sem Haukur barð­ist með, í mars að Haukur hefði verið sendur frá Sýrlandi til Íraks og snúið svo aftur til að berj­ast með her­sveit­inni. 

Upplýsingum haldið frá aðstandendum og Alþingi

Enn hafa hvorki aðstand­endur Hauks Hilm­ars­sonar né utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis fengið í hendur gögn um leit­ina að Hauki sem óskað var eftir frá utan­rík­is­þjón­ust­unni um miðjan mars.

Stundin hefur verið í sam­bandi við aðstand­endur og vini Hauks sem hafa hringt hund­ruð sím­tala og leitað ótal leiða til að graf­ast fyrir um afdrif hans.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rann­sakar málið sem manns­hvarf, en þær upp­lýs­ingar sem emb­ættið hefur fengið byggja nær alfarið á þeirri sjálf­stæðu eft­ir­grennslan aðstand­enda. 

Eva Hauks­dóttir

Eva Hauks­dóttir, móðir Hauks, bíður þess enn að fá afhent öll til­tæk gögn um þær aðgerðir sem utan­rík­is­ráðu­neytið hefur gripið til í því skyni að finna Hauk. Hún upp­lýsti um það í Víg­lín­unni á Stöð 2 í gær að ráðu­neytið hygð­ist afhenda henni gögnin á mánu­dag­inn. 

Utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis hefur heldur ekki fengið minn­is­blað um málið sem óskað var eftir að frum­kvæði Loga Ein­ars­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar. Í svari utan­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar kemur fram að minn­is­blaðið sé enn í vinnslu og verði lík­lega sent nefnd­inni í næstu viku.

Segir röksemdir ráðuneytisins til 
marks um sinnuleysi og vanrækslu

Snorri Páll Jónsson, vinur Hauks Hilm­ars­sonar til margra ára, furðar sig á því að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi ekki haft sam­band við yfir­völd í Rojava og Írak og segir að upp­lýs­inga­leyndin um leitar­að­gerðir ráðu­neyt­is­ins hafi bitnað á við­leitni aðstand­enda til að finna Hauk. 

Snorri Páll Jónsson

„Það er virki­lega slæmt að fjöl­skylda og aðrir aðstand­endur hafi ekki enn fengið gögn um leit­ina að Hauki. Fyrir það fyrsta er ómögu­legt að treysta því að verið sé að vinna að þessu máli af fullum þunga og heil­indum ef aðstand­endur fá ekki upp­lýs­ingar og gögn um það sem verið er að gera. Það þarf að ríkja fullt traust milli aðstand­enda og yfir­valda í sér­stöku máli eins og þessu, til þess ein­fald­lega að hinir fyrr­nefndu geti upp­lifað ákveðna ró og full­vissu um að verið sé að sinna því,“ segir Snorri. 

„Við þetta bæt­ist síðan við­horfið sem vinir og aðstand­endur hafa mætt frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem hefur alls ekki ýtt undir slíkt traust. Til að mynda vildi utan­rík­is­ráð­herra ekki funda með aðstand­endum fyrr en fjöl­skyldu­með­limir mættu í ráðu­neytið, kröfð­ust þess að fá að ræða við hann og neit­uðu að hafa sig á brott fyrr en feng­ist hefði fundur næsta dag, en þann dag ræddi hann einmitt fyrst við utan­rík­is­ráð­herra Tyrk­lands. Skömmu síð­ast bár­ust okkur upp­lýs­ingar frá okkar heim­ilda­mönnum – sem síðar feng­ust svo stað­festar – sem bentu til þess að ekki hefði verið haft sam­band við varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands, en maður hefði jú haldið að það væri eitt það fyrsta sem ráðu­neytið gerði. Allt þetta, ann­ars vegar upp­lýs­inga­skort­ur­inn og hins vegar við­horfið og þær heim­ildir sem við nálg­umst með okkar leiðum um störf ráðu­neyt­is­ins, allt saman skapar þetta van­traust.“

„Þegar við fáum núna stað­fest­ingu á því
að ráðu­neytið hafi hvorki haft sam­band
við yfir­völd í Rojava né í Írak þá fall­ast
manni ein­fald­lega hendur“

Snorri bendir á að aðstand­endur hafi sjálfir leitað ýmissa leiða til að graf­ast fyrir um afdrif Hauks. „Utan­rík­is­ráðu­neytið er með­vitað um það og hefur fengið ein­hverjar upp­lýs­ingar frá okkur. Þau vita að þau hafa ákveð­inn aðgang að okkur, en hafa ekki nýtt sér það. Reyndar hafa þau frá því að leitin hófst ekki spurt okkur svo mikið sem einnar spurn­ingar að eigin frum­kvæði um það sem við höfum kom­ist að. En það sem meira er, það getur bein­línis hamlað okkar sjálf­stæðu rann­sókn að vita ekki hvað stjórn­völd hafa gert og í hverju þeirra leitar­að­gerðir fel­ast. Þegar við fáum núna stað­fest­ingu á því frá fjöl­miðlum að utan­rík­is­ráðu­neytið hafi ekki talað við þau póli­tísku yfir­völd sem borð­leggj­andi er að ræða við, hvorki haft sam­band við yfir­völd í Rojava né í Írak, þá fall­ast manni ein­fald­lega hendur. Þetta er eitt­hvað sem við hefðum þá auð­vitað fyrir löngu reynt að gera sjálf eftir óhefð­bundnum leiðum. Það liggur í augum uppi að hlut­verk íslenskra stjórn­valda er að hafa sam­band við stjórn­völd ann­arra ríkja – eða sjálf­stjórn­ar­svæða, líkt og í til­felli Rojava – á meðan við reynum að finna Hauk eftir þeim leiðum sem okkur eru færar.“

Snorri telur skýr­ingar utan­ríkis-ráðu­neyt­is­ins á því að ekki var haft sam­band við yfir­völd í Írak og Rojava ekki halda vatni. „Þessi rök­semda­færsla er ein­ungis til marks um algjört sinnu­leysi og van­rækslu. Þar að auki stang­ast hún á við þau svör ráðu­neyt­is­ins að unnið hafi verið út frá vís­bend­ingum frá fjöl­skyldu, af net­inu og úr fjöl­miðlum. Það er til að mynda alrangt að ekk­ert bendi til þess að Haukur hafi verið í Írak, enda kemur skýrt fram í yfir­lýs­ingu International Freedom Batallion að hann hafi áður reynt að kom­ast til Rojava í gegnum Írak. Hvað Rojava varðar er það auð­vitað út í hött að þangað hafi ekki verið haft sam­band sökum þess eins að „vina­þjóðir“ Íslands hafi sagt nær ómögu­legt að fá þaðan upp­lýs­ingar með form­legum leiðum. Það gefur auga­leið að utan­rík­is­ráðu­neytið mun ekki kom­ast að því hvort hægt sé að afla þaðan upp­lýs­inga dratt­ist það ekki einu sinni til þess að reyna.“ 

Svör ráðuneytisins við fyrirspurn Stundarinnar:

1. Hafa aðstand­endur Hauks Hilm­ars­sonar fengið aðgang að gögnum um leit ráðu­neyt­is­ins að honum?

„Þessi spurn­ing varðar einka­mál­efni ein­stak­linga og því er utan­rík­is­ráðu­neyt­inu ekki unnt að svara henni, sbr. 9. grein upp­lýs­inga­laga.“

2. Hefur utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis fengið umbeðin gögn um leit­ina að Hauki Hilm­ars­syni, svo sem minn­is­blöð eða annað?

„Utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis hefur verið upp­lýst um fram­vindu máls­ins og fóru full­trúar utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins á fund nefnd­ar­innar 14. mars síð­ast­lið­inn. Utan­rík­is­mála­nefnd verður áfram upp­lýst um stöðu mála, meðal ann­ars á grund­velli minn­is­blaðs sem er í vinnslu og verðu vænt­an­lega sent nefnd­inni í næstu viku.“

3. Hvenær hafði ráðu­neytið fyrst sam­band við varn­ar­mála­ráðu­neyti Tyrk­lands?

„Um leið og óstað­festar fregnir bár­ust um að Haukur Hilm­ars­son hefði fallið í átökum í Afrin hóf utan­rík­is­ráðu­neytið eft­ir­grennslan með fyr­ir­spurnum til tyrk­neskra stjórn­valda, fyrst í gegnum ræð­is­menn Íslands í Tyrk­landi, svo með sam­tölum við sendi­herra Tyrk­lands í Ósló og her­mála­full­trúa Tyrk­lands hjá Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. 13. mars var svo form­lega farið fram á fund með varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands. Síma­fundur utan­rík­is­ráð­herra og tyrk­neska varn­ar­mála­ráð­herr­ans fór fram 19. mars. Áður hafði utan­rík­is­ráð­herra rætt við utan­rík­is­ráð­herra Tyrk­lands um mál Hauks og félags- og jafn­rétt­is­ráð­herra átt fund með fjöl­skyldu­mála­ráð­herra Tyrk­lands um sama mál. Frá upp­hafi hafa utan­rík­is­ráðu­neytið, sendi­skrif­stofur og ræð­is­menn lagt allt kapp á að kom­ast að afdrifum Hauks.“

4. Hafa íslensk yfir­völd fengið stað­fest hvort og hvernig Haukur komst til Sýrlands?

„Íslensk stjórn­völd hafa ekki fengið stað­fest hvort og þá hvernig Haukur Hilm­ars­son komst til Sýrlands. Hins vegar hafa feng­ist nokkuð áreið­an­legar vís­bend­ingar um veru Hauks í Sýrlandi frá fjöl­skyldu hans, á net­inu og í fjöl­miðlum og því er unnið út frá því að hann hafi verið þar.“

5. Hefur ráðu­neytið haft sam­band við a) Sýr­lands­stjórn b) yfir­völd í Rojava og c) yfir­völd í Írak vegna leit­ar­innar að Hauki?

„Þann 7. mars, dag­inn eftir að óstað­festar fréttir bár­ust um að Haukur hefði fallið í Afrin, var haft sam­band við sýr­lensk stjórn­völd í gegnum ræð­is­mann Íslands í Damaskus til að grennsl­ast fyrir um afdrif hans. Svar barst 11. mars en því miður höfðu sýr­lensk stjórn­völd engum gagn­legum upp­lýs­ingum að miðla um málið. Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki haft sam­band við yfir­völd í Rojava enda er upp­lýs­inga­öflun á þessu svæði eftir form­legum leiðum því sem næst ómögu­leg sam­kvæmt upp­lýs­ingum ráðu­neyt­is­ins frá vina­þjóðum. Auk þess fara Tyrkir með yfir­ráð yfir því svæði þar sem ótt­ast er að Haukur hafi látið lífið en sem fyrr segir hefur ítrekað verið haft sam­band við tyrk­nesk stjórn­völd um málið. Ekki hefur verið haft sam­band við stjórn­völd í Írak enda benda fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar ekki til að Haukur hafi farið þangað. Hins vegar hefur sendi­ráð Íslands í Stokk­hólmi verið í sam­bandi við sam­tök Kúrda í Stokk­hólmi en félagar í þeim koma flestir frá Írak.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“
FréttirRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis
GreiningRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.
Stjórnarsáttmálinn er stefna Framsóknarflokksins
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.
Ný ríkisstjórn boðar einkaframkvæmdir, orkuskipti og bankasölu, en kvótakerfið og stjórnarskráin fara í nefnd
ÚttektRíkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

Ný rík­is­stjórn boðar einka­fram­kvæmdir, orku­skipti og banka­sölu, en kvóta­kerfið og stjórn­ar­skráin fara í nefnd

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur setur þrjú megin við­fangs­efni í for­grunn: Lofts­lags­mál, öldr­unar- og heil­brigð­is­mál og tækni­breyt­ingar. Styðja á við staf­ræna tækni í heil­brigð­is­málum. Lítið er rætt um skatta­mál. Einka­fram­kvæmdir verða í vega­kerf­inu og vænt­an­lega rukkað fyrir notkun vega.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár