Nefnd um fjármál stjórnmálaflokka ætlað að takast á við nafnlausan áróður

Formaður nefnd­ar­innar segir að til lengri tíma litið muni allir tapa ef ekki tekst að koma böndum á hat­ursá­róður og fals­fréttir í stjórn­málum.

Nefnd um fjármál stjórnmálaflokka ætlað að takast á við nafnlausan áróður
End­ur­skoða lög um fjár­fram­lög For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað nefnd sem ætlað er að end­ur­skoða lög um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka. Nefnd­inni er einnig ætlað að finna leiðir til að takast á við nafn­lausan áróður. Mynd: Pressphotos.biz

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra hefur skipað nefnd um end­ur­skoðun laga um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka og fram­bjóð­enda og upp­lýs­inga­skyldu þeirra. Nefnd­inni er einnig ætlað að finna leiðir til að takast á við nafn­lausan áróður og aug­lýs­ingar, hlið­ar­kenni­tölur og ógagnsæ lán til stjórn­mála­flokka. Formaður nefnd­ar­innar segir að ef ekki tak­ist að finna leiðir til að hefta slíkan áróður og koma í veg fyrir að farið verði fram­hjá lögum, muni það þýði að allir tapi á end­anum.

Nefndin var skipuð 8. febr­úar síð­ast­lið­inn og segir í skip­un­ar­bréfi að mark­mið end­ur­skoð­unar lag­anna sé „að leita leiða til að tryggja betur en nú er fjár­mögnun og sjálf­stæði stjórn­mála­sam­taka og efla lýð­ræð­is­leg vinnu­brögð og gagn­sæi í störfum þeirra. Stjórn­mála­sam­tök eru vett­vangur umræðna og mótun lausna á við­fangs­efnum sam­tím­ans. Þeir þurfa að vera lýð­ræð­is­legir, óháðir hags­muna­öflum, sjálf­stæðir og starf­semi þeirra og fjár­mál þurfa að vera gagnsæ. Stjórn­mála­hreyf­ingar þurfa að geta boðið fólki að taka virkan þátt í stjórn­mála­starfi án þess að það sé fjár­hags­lega íþyngj­andi fyrir við­kom­andi.“

Fengu veglega hækkun í ár

Seint á síð­asta ári sendu full­trúar sex stjórn­mála­flokka sem eiga full­trúa á Alþingi erindi til fjár­laga­nefndar þings­ins þar sem farið var fram á að flokk­arnir fengju við­bót­ar­fram­lag á fjár­lögum þessa árs. Var farið fram á að heild­ar­fram­lagið yrði fært úr 286 millj­ónum króna í 648 millj­ónir, 127 pró­sent aukn­ing. Í erind­inu var hækk­unin sögð nauð­syn­leg og bent á að fram­lög rík­is­ins hafi lækkað ár frá ári frá því að lög um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka tóku gildi árið 2007. Staða mála væri orðin sú að flokk­arnir næðu ekki endum saman til að sinna grunn­þörfum í rekstri og að slíkt væri í raun ógn við lýð­ræðið.

„Ég óskaði eftir því að nefndin fengi lengri tíma til að vinna að til­lögum að leiðum til að koma vörnum við gegn nafn­lausum áróðri, hlið­ar­kenni­tölum og sjálf­skip­uðum hópum sem vaða uppi með hat­ursá­róður og fals­fréttir í tengslum við stjórn­málin og kosn­ingar“

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar Alþingis lagði til að beiðni stjórn­mála­flokk­anna yrði sam­þykkt í lok síð­asta árs og varð það úr. Samtals fá rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír 347,5 millj­ónir króna í styrk úr rík­is­sjóði, en fjár­munum er úthlutað í sam­ræmi við þing­styrk flokk­anna. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fá hins vegar 300,5 millj­ónir króna.

Tækifæri til að jafna aðstöðu flokkanna

Í skip­un­ar­bréfi nefnd­ar­innar er til­tekið að tölu­verðum hluta af fram­lögum rík­is­ins sé ráð­stafað í kostn­að­ar­liði sem séu í raun óháðir þing­styrk og megi þar nefna skrif­stofu­rekstur, lág­marks starfs­manna­hald, lög­bundna skyldu til færslu bók­halds og end­ur­skoð­unar árs­reikn­inga, auk ann­ars. Með fjölgun flokka sem sæti eigi á Alþingi hafi hlut­fall fjár­muna sem varið er í rekstur slíkra grunn­hlut­verka hækkað veru­lega. „Með end­ur­skoðun lag­anna gefst tæki­færi til að jafna aðstöðu flokk­anna að þessu leyti, óháð stærð þeirra, sem felur sér í lagi í sér auk­inn stuðn­ing við smærri flokka,“ segir í skip­un­ar­bréf­inu.

Flokkar utan þings óskuðu eftir aðkomu

Flokkar sem ekki eiga sæti á Alþingi eiga tak­mark­aðan rétt á fjár­fram­lögum. Þó segir í lögum um fjár­mál stjórn­mála­sam­taka að flokkar sem hlotið hafi að minnsta kosti 2,5 pró­sent atkvæða í þing­kosn­ingum skuli fá úthlutað fjár­munum í sam­ræmi við atkvæða­magn. Þá geti stjórn­mála­sam­tök sem bjóði fram í öllum kjör­dæmum sótt um sér­stakan styrk, að hámarki 3 millj­ónir króna, til að mæta útlögðum kostn­aði við kosn­inga­bar­átt­una.

Full­trúar flokka sem ekki eiga sæti á Alþingi voru ekki skip­aðir í nefnd­ina. Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stýra Vinstri grænna, sem skipuð var for­maður hennar segir hins vegar í sam­tali við Stundina að full­trúar Alþýðu­fylk­ing­ar­innar hafi sett sig í sam­band við hana og æskt þess að eiga aðkomu að nefnd­ar­stör­f­unum. Varð úr að Alþýðu­fylk­ingin myndi taka að sér að hafa sam­band við full­trúa ann­arra flokka í sömu stöðu og ræða hvaða aðkomu þeir geti átt að starfi nefnd­ar­innar.

„Þau vilja, sem mjög eðli­legt er, fylgj­ast með þessu starfi og fá leið­rétt­ingu sinna mála ef þörf er á. Við ræddum það í þessu sam­hengi, við Þor­valdur [Þor­valds­son, for­maður Alþýðu­fylk­ing­ar­innar], hætt­una sem gæti falist í að moka pen­ingum í flokka sem eru kannski í raun ekki starf­andi, og við erum alveg með­vituð um að fara verði var­lega í þeim efnum,“ segir Björg Eva.

Þarf að bregðast við nafnlausum áróðri og svindli

Nefndin hefur fundað einu sinni en henni er ætlað að skila nið­ur­stöðu fyrir 1. júní næst­kom­andi. Björg Eva segir hins vegar að ein­ungis sé stefnt að því að skila nið­ur­stöðum er varði fjár­fram­lög til flokk­anna og reglum er þau varða fyrir þann tíma. „Ég óskaði eftir því að nefndin fengi lengri tíma til að vinna að til­lögum að leiðum til að koma vörnum við gegn nafn­lausum áróðri, hlið­ar­kenni­tölum og sjálf­skip­uðum hópum sem vaða uppi með hat­ursá­róður og fals­fréttir í tengslum við stjórn­málin og kosn­ingar. Þetta tel ég afar mik­il­vægt verk­efni og við munum meðal ann­ars hafa sam­starf við Fjöl­miðla­nefnd hvað þetta varðar, en hún hefur þegar fjallað um þetta. Það er nauð­syn­legt að finna leiðir til að bregð­ast við og ég trúi að nefndin geti fundið þær leiðir. Til lengri tíma litið munu nefni­lega allir tapa ef ekki verður brugð­ist við.“

Eft­ir­taldir full­trúar skipa nefnd­ina:

Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs, for­maður.

Þórður Þór­ar­ins­son, fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Helgi Haukur Hauksson, fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Ásgeir Run­ólfs­son, aðstoð­ar­maður for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar.

Hólm­fríður Þór­is­dóttir, skrif­stofu­stjóri Mið­flokks­ins.

Erla Hlyns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Pírata.

Birna Þór­ar­ins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Við­reisnar.

Magnús Þór Haf­steins­son, rit­ari þing­flokks Flokks fólks­ins

Lárus Ögmunds­son, aðal­lög­fræð­ingur Rík­is­end­ur­skoð­unar.

Hjördís Stef­áns­dóttir, lög­fræð­ingur í dóms­mála­ráðu­neyt­inu.

Ágúst Geir Ágústs­son, skrif­stofu­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu.

 

 

 

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár